Til að byrja með er hæfilegt að æfa 3 sinnum í viku Arnar Grant skrifar 24. janúar 2014 21:00 Arnar Grant.
Flestir renna blint í sjóinn með það hvernig þeir ætla að halda heilsu lengur en ella, en sannleikurinn er sá að menn þurfa að viðhalda líkamanum rétt eins og vél. Það er því eins gott að hafa augun opin þegar viðvörunarljósin byrja að blikka, en það gerist oft án þess að við viljum taka eftir þeim. Dæmi um viðvörunarljós eru stirðleiki og/eða orkuleysi, þunglyndi og ótti við að reyna nýja hluti – og já, útstæður magi. Andlega hliðin er oft líka merki um líkama sem er að telja út. Það er því ekki skynsamlegt að renna blint í sjóinn með hvernig taka eigi á málum, heldur horfa fram á við. Til þess þarf maður að kveikja á augunum og líta á magn sitt, útlit og einnig andlegt heilsufar. Mín reynsla er sú að best sé að setja sér langtímamarkmið til 6 mánaða í einu. Ef markmiðið er að minnka fituprósentu og léttast og við miðum við að 10% af líkamsþyngd eigi að tapast á þessum tíma þá skiptum við þessum 6 mánuðum niður í 6 skammtímamarkmið. Sem dæmi má nefna að kona sem er 75 kg og hefur það markmið að losa sig við 7,5 kg á 6 mánuðum er þá með það markmið að losna við 1,25 kg á mánuði. Ef markmiðið er að bæta á sig vöðvamassa er notuð sama tækni. Þar miðum við út frá að á 6 mánaða tímabili bæti karlmaður á sig um 3% af heildarþyngd líkamans. Ef tekið er dæmi um karlmann sem er 85 kg er eðlilegt markmið að þyngjast um 2,5 kg á 6 mánaða tímabili án þess að hækka fituprósentuna nokkuð. Mánaðarmarkmið hans ætti því að vera tæp 500gr. Með hæfilegum skammtastærðum af hollum mat, góðum nætursvefni og hreyfingu, ætti fólk að sjá árangur innan skamms tíma. Enginn ætti að leyfa sér að komast upp með þá eftirlátssemi að éta nákvæmlega það sem löngunin kallar á. Það heitir í raun að gefast upp fyrir feita manninum innra með sér. Í stað þess ætti hver maður að hugsa: Ég gæti gert betur með færri hitaeiningum, gæti opnað mér nýja möguleika til ferðalaga með því að smækka skammtinn í kvöldmatnum, gæti gert lífið skemmtilegra með því t.d. að taka upp á því að dansa í stofunni á kvöldin. Og kannski er það einmitt þetta sem vantar í matargræðgina, það er: Að reyna gera kröfurnar til sjálfs síns skemmtilegar. Málið er að græðgin er í eðli sínu þrá sem vill bara meira og meira, en reynir aldrei að gera kröfurnar og ábyrgðina til lífsins að frumlegri sókn eftir einhverju betra. Því þannig er nú lífið að allt gott kostar erfiði og erfiði kostar frumlega sýn til að gera það skemmtilegra. Engum er nefnilega hollt að búa við skýlausan himinn því sá sem aldrei nærist á erfiði framkallar ekkert, nema stundlega vellíðan – en erfiði veitir langvarandi öldu vellíðunar yfir anda og líkama. En til þess þarf að púla. Púl og erfiði er nefnilega skemmtilegt vesen, að minnsta kosti þegar það er gert á þann hátt sem lýst er hér að ofan. Til að byrja með er hæfilegt að æfa 3 sinnum í viku og mæli ég með æfingum annan hvern dag til þess að ná að hvílast vel á milli æfinga. Á annari viku er strax hægt að fjölga settum, þyngja lóð og auka hraðann. Þriðju vikuna er svo hægt að bæta inn 4 æfingunni og svo framvegis. Eftir að fyrsta skammtímamarkmiðinu er náð metur maður stöðuna upp á nýtt varðandi æfingarfjölda og aðhald í mataræði. Mikilvægt er að verðlauna sjálfan sig eftir að markmiðinu er náð til dæmis með því að fara í nudd eða kaupa á sig fallega flík. Ekki verðlauna ykkur með því að úða í ykkur það miklu ruslfæði að þið verðið sigruð andlega og líkamlega á eftir.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira