Viðskipti innlent

Skynjar mikinn áhuga á eignum ÍLS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hluti af þeim eignum sem Íbúðalánasjóður er með til sölu er við Eskivelli í Hafnarfirði.
Hluti af þeim eignum sem Íbúðalánasjóður er með til sölu er við Eskivelli í Hafnarfirði. Fréttablaðið/ernir
Forsvarsmenn tveggja af þremur stærstu lífeyrissjóðunum hafa ekki velt fyrir sér kaupum á þeim eignasöfnum sem Íbúðalánasjóður hefur boðið til sölu. Formlegt söluferli var hafið þann 17. október, en áður hafði Íbúðalánasjóður boðað til fundar þar sem eignirnar voru kynntar. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboði rennur út 6. nóvember.

Eignirnar eru samtals um 400 talsins og eru staðsettar víða á landinu. Flestar eignirnar eru í Reykjanesbæ, eða um 151 talsins. Næstflestar eru í Fjarðabyggð eða 71 og svo á Fljótsdalshéraði.

„Ekki ennþá,“ segir Þórhallur Jósepsson, upplýsingafulltrúi Lífeyrissjóðs verslunarmanna, aðspurður hvort sjóðurinn hafi skoðað kaup á þessum eigum. Ekkert liggi þó fyrir um það hvað sjóðurinn muni gera á næstunni. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur lífeyrissjóðurinn Gildi ekki heldur sýnt eignunum áhuga enn sem komið er. Ekki náðist í Hauk Hafsteinsson, framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, við vinnslu fréttarinnar.

Sigurður Erlingsson
Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir þó að viðbrögð við þessum auglýstu eignum hafi farið langt fram úr vonum Íbúðalánasjóðs. Hann bendir á að margir hafi sótt kynningarfundinn og margir sótt gögn sem Íbúðalánasjóður útbjó um eignirnar. Hann bendir jafnframt á að söluferlið muni standa yfir allt fram í janúar.

„Það er allavega töluverður áhugi,“ segir Sigurður. Þetta séu aðallega eignasterkari aðilar, sjóðir og aðilar tengdir sjóðum en líka félög sem reki leigufélög. „Þetta er breiður hópur samt sem áður,“ segir hann. Sigurður segist ekki hafa kannað hvaða eignir fái mestu athyglina. „Þó maður hallist að því að þetta sé svona meira Reykjavík og önnur nærliggjandi sveitarfélög,“ segir Sigurður.

Umræddar eignir eru boðnar til sölu í sjö eignasöfnum. Í lýsingu á eignunum segir að við val í hvert eignasafn hafi verið horft til þess að eignirnar henti til útleigu og valdar hafi verið íbúðir í kjörnum sem voru í útleigu.

Það sé forsenda sölunnar að íbúðirnar verði seldar aðilum sem munu eiga þær áfram til útleigu. Þannig verður sérstaklega litið til þess við val á kaupendum, hverjar fyrirætlanir þeirra séu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×