Lífið

Framtíðin að prenta hönnunina í þrívídd

Garðar Eyjólfsson vöruhönnuður
Garðar Eyjólfsson vöruhönnuður Vísir/Ernir
Garðar Eyjólfsson vöruhönnuður tekur þátt í Burst Open sem er alþjóðleg samsýning hönnuða haldin í Ástralíu.

Yfirskrift sýningarinnar er „open source“ eða opið kerfi, en hugtakið verður sífellt vinsælla í hönnunarheiminum í dag, sérstaklega með tilkomu þrívíddarprentara, þar sem lögð er áhersla á ferlið en ekki lokaútkomuna sem slíka.

Sex hönnuðir um allan heim tóku þátt og var þeirra hlutverk að staðsetja hönnuðinn í ferlinu. Í stað þess að kaupa vöruna er aðgangur keyptur að teikningum af henni.

„Ég fékk mikinn innblástur frá ítalska hönnuðinum Enzo Mari, en hann var mikill frumkvöðull í þessari opnu hönnun. Árið 1968 gaf hann út teikningabók þar sem hann hafði gert teikningar af húsgögnum sem þú smíðaðir svo sjálfur út frá því. Munurinn er auðvitað að hann gaf út bók, sem er efnisleg, en í dag er þetta á stafrænu formi, óefnislegt,“ segir Garðar.

Þátttakendur áttu að velja sér einn þekktan hlut til þess að vinna með, setja í nýjan farveg og nota í hönnunina og valdi Garðar að nota svokölluð bensli eða „zip-tie“. „Ég valdi mér nú bara að gera lampa, notaði íslenskt efni, líparít í botninn, birkitré í stöngina og hreindýraleður í skerminn og festi saman með benslunum.

Hugmyndin er svo að ef einhver ætlar að gera lampann til dæmis í Ástralíu getur hann notað staðbundið efni þar,“ segir Garðar. Hann segir þetta gríðarlega spennandi tækifæri til þess að vinna með hugmyndir varðandi iðn og framleiðslu. „Það eru svo margir spennandi hlutir að gerast í þessu, handverk er að fá alveg nýja meiningu og búa til sitt eigið, eins og keramík með þrívíddarprentara,“ segir hann.

„Það var ótrúlega gaman að leika sér í þessum nýja veruleika og skoða hvernig hugmyndir um fegurð og efnisnotkun breytast í þessu ferli. Þetta er vísir að einhverju sem gæti mögulega verið vaxandi, sem er spennandi, því þetta gæti breytt öllum hönnunarbransanum,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.