Asnalegt að segja nei við þessu Ugla Egilsdóttir skrifar 30. janúar 2014 10:30 Ásdís söng Pink Matter eftir Frank Ocean í Söngkeppni framhaldsskólanna. Mynd/Álfheiður Erla Guðmundsdóttir.
Ásdís María Viðarsdóttir syngur lagið Amor eftir Hauk Johnson í undankeppni Eurovision. „Aðdragandinn að þátttöku minni var ekkert sérlega rómantískur. Haukur sendi mér skilaboð á Facebook og spurði hvort ég vildi taka þátt,“ segir Ásdís. „Ég var pínu efins fyrst. Svo heyrði ég lagið og mér fannst það mjög gott. Mér fannst líka asnalegt að segja nei við góðu tækifæri því mig langar til að verða söngkona. Ég er að deyja úr spenningi.“ Ásdís María er yngsti flytjandinn í undankeppninni í ár. „Ég er samt ekkert svo ung, ég er tvítug. Það er búið að gera allt í heiminum, þannig að til að vekja athygli þarf maður annað hvort að vera yngstur eða elstur til að gera eitthvað. Ég er ekki alveg nógu ung til að það sé eitthvað stórmerkilegt. Ég er búin að missa af þeirri lest. En ég get enn orðið elst til að gera eitthvað. Ég stefni að því að taka aftur þátt seinna og vera þá elsti keppandinn í sögu keppninnar.“ Ásdís María vann Söngvakeppni framhaldsskóla síðasta vor. „Haukur sá mig keppa í Söngvakeppninni, og hafði mig þess vegna í huga fyrir Eurovision.“ Ásdís fær góða æfingu fyrir söngkeppnir á karókíkvöldum á Harlem, sem Margrét Erla Maack og Ragnheiður Maísól standa fyrir. „Ég er algjör karókíkona. Ég syng alltaf annað hvort eitthvað geðveikt hresst eða trylltar ballöður. “
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira