Lífið

Stelpurnar snúa aftur

Baldvin Þormóðsson skrifar
Ilmur Kristjánsdóttir mun líklegast koma til með að vera hluti af verkefninu.
Ilmur Kristjánsdóttir mun líklegast koma til með að vera hluti af verkefninu. vísir/stefán
Tökur á nýrri seríu af gamanþættinum Stelpunum hefjast innan skamms samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sagt er að seríunni verði leikstýrt af Óskari Jónassyni sem leikstýrði fyrstu seríunni af þáttunum.

Þá herma fregnir einnig að reynt verði að fá sömu leikara og fóru á kostum í fyrri seríum, til að mynda Ilmi Kristjánsdóttur, Nínu Dögg Filippusdóttur og Kjartan Guðjónsson.

Ef allt gengur að óskum verður serían sýnd á Stöð 2 í vetur en það er framleiðslufyrirtækið Sagafilm sem framleiðir þættina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×