Sjálfstætt ráðuneyti dómsmála? Jónas Þór Guðmundsson skrifar 11. október 2014 00:01 Í grein sem birtist í Morgunblaðinu 30. janúar síðastliðinn spurðum við hvort nægilega vel hefði verið búið að málefnum dómstóla og réttarfars í yfirstjórn ríkisins og þá einkum í nýju innanríkisráðuneyti sem tók til starfa í ársbyrjun 2011. Töldum við margt benda til að sú breyting á Stjórnarráðinu sem þá var gerð hefði leitt til þess að málaflokkurinn fengi nú minna vægi og athygli en áður. Niðurstaða okkar var sú að ef ekki tækist að bæta stöðu dómstólanna hlyti að koma til skoðunar hvort ástæða væri til að endurvekja sjálfstætt ráðuneyti dómsmála. Vísi að sjálfstæðu dómsmálaráðuneyti má rekja til upphafs heimastjórnar árið 1904 og stofnunar Stjórnarráðs Íslands en ein af þremur skrifstofum þess fór með dóms-, skóla- og kirkjumál. Frá 1917 nefndust skrifstofurnar deildir og 1921 kom ráðuneyti í stað deildar. Ráðuneytin voru þá dóms- og kirkjumálaráðuneyti, atvinnu- og samgöngumálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Árið 1947 voru skólamálin flutt í forsætisráðuneytið. Saga Stjórnarráðsins verður ekki rakin frekar hér en þó skal nefnt að dóms- og kirkjumálaráðuneytið fékk heitið dóms- og mannréttindaráðuneyti árið 2009 og í ársbyrjun 2011 voru dómsmála- og mannréttindaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið sameinuð í eitt innanríkisráðuneyti. Sameiningin var liður í víðtækri breytingu á Stjórnarráðinu þar sem ráðuneytum var fækkað og þau stækkuð með sameiningum. Í tilviki þessara ráðuneyta lágu til grundvallar önnur sjónarmið en þau að málaflokkarnir hefðu verið taldir hafa sérstaka efnislega samstöðu. Löngum var litið á dóms- og kirkjumálaráðuneytið sem mikilvægt ráðuneyti, t.d. í stjórnarmyndunum, þótt ráðuneytið væri í seinni tíð hvorki sérlega stórt né helsta andlag flokkspólitískra stefnumiða. Í mörgum tilvikum var ráðherra dómsmála einnig ráðherra annarra ráðuneyta. Árið 1992 var til dæmis sami maður sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra og stýrði sem slíkur þeim umfangsmiklu breytingum á dómstólaskipaninni sem gengu í gildi það ár. Einn af grunnþáttunum Dómstólarnir og starfsemi þeirra eru einn af grunnþáttum stjórnskipunar ríkisins. Eðlilegt er að skipan Stjórnarráðsins endurspegli þetta mikilvægi með því að dómsmálum og skyldum efnum sé komið fyrir í sjálfstæðu ráðuneyti en ekki í skrifstofu stærra ráðuneytis. Einnig má setja spurningarmerki við þá tilhögun að skipa saman svo ólíkum málaflokkum sem dómsmálum og vegagerð. Þótt ekki sé ómögulegt að byggja upp sérþekkingu innan slíks „stór-ráðuneytis“ er hættan sú að áherslan á dómsmálin verði minni en þörf er á. Sjálfstætt dómsmálaráðuneyti hefur ekki óhjákvæmilega í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Þvert á móti má halda því fram með rökum að traust og skilvirkt réttarkerfi spari ríki og borgurum þess útgjöld, öfugt við vanhaldið kerfi. Með sjálfstæðu dómsmálaráðuneyti væri leitast við að tryggja að dóms- og réttarfarsmál fengju meiri athygli en þau fá nú. Það er ekki eingöngu æskilegt heldur beinlínis nauðsynlegt. Því ber að fagna þeim hugmyndum sem fram hafa komið hjá ráðamönnum á síðustu vikum um endurreisn dómsmálaráðuneytisins. Þær samræmast einnig vel stefnu núverandi ríkisstjórnar um að gera grundvallarbreytingu á dómskerfinu með upptöku millidómstigs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun