Sleppa tökunum á verkinu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. október 2014 11:00 Ólafur Egill Egilsson og Kristín Marja Baldursdóttir komu við á æfingu tveimur dögum fyrir frumsýningu en hafa annars haldið sér sem mest til hlés. visir/ernir
Leiksýningin Karitas var frumsýnd í gærkvöldi í Þjóðleikhúsinu. Sýningin er byggð á bók Kristínar Marju Baldursdóttur og Ólafur Egill Egilsson skrifaði leikgerðina í samvinnu við Símon Birgisson. Tveimur dögum fyrir frumsýningu voru þau full tilhlökkunar að sjá sýninguna en viðurkenndu þó að þau muni líklega sitja í salnum í fullkominni angist, að fylgjast með öðrum listamönnum með sköpun þeirra í höndunum. Kristín Marja segir að það reyni á hana að sjá verkið í höndum annarra, jafnvel þótt það sé í höndum fremstu listamanna þjóðarinnar. „Það er erfiðara með þetta verk en önnur því sagan er aðeins tengd mér. Ég er mjög stolt af því að Þjóðleikhúsið taki verkið til sýningar og ég vona að móðir mín, ömmur og langömmur séu líka stoltar en þær stíga nú allar dansinn á hvítum himni. Þótt bókin sé einber skáldskapur og persónur allar fæddar í mínum huga eru þó þarna myndir sem ég sótti í reynslu þeirra eða sögur sem þær sögðu mér,“ segir Kristín og bætir við að hún hafi ekkert komið að uppsetningunni en hafi þó sett eitt skilyrði. „Ég vildi að Ólafur Egill skrifaði handritið. Ég vissi að ef einhver gæti náð kjarnanum í sögunni þá væri það hann.“ Kristín Marja nær oft djúpum tengslum við persónur sínar og því hlýtur að vera erfitt að sleppa af þeim tökunum. „Ég hef hugsað mikið um þetta og held að með því að verkið fái nýtt form komist bókmenntirnar með sínum persónum til fleiri, til dæmis til fólks sem almennt les ekki, en hefur ánægju af leikhúsi. Tökum sem dæmi Buddenbrooks eftir Thomas Mann. Ég hef lesið þessa bók þrisvar en það var ekki fyrr en ég sá verkið á sviði í leikhúsi í Þýskalandi í vetur sem ég áttaði mig á kjarna verksins. Bókin er 800 blaðsíður en handritshöfundi tókst að koma þessu til skila með tveggja tíma flutningi. Ég hef fylgst með handriti Ólafs á öllum stigum og veit því að hann fann kjarnann og kemur honum til skila.“Brynhildur Guðjónsdóttir í hlutverki sínu sem KaritasÓlafur skýtur inn í að kjarninn sé líka góður. „Bókin sogaði mig til sín eins og aðra lesendur.“ En hver er þessi kjarni? „Meginkjarni verksins er, eins og ég upplifi það, að fólk verði að fylgja köllun sinni, hver svo sem hún er, og það geti útheimt fórnir af ýmsum toga. Sagan gerist vissulega á öðrum tíma en mér finnst hún þó, eins sorglegt og það er, skírskota til okkar tíma. Þarna er kona sem velur að „krota“ umfram það að standa í barnauppeldi eða fá sér almennilega vinnu eins og það heitir. Það er þungur kross að bera og enn í dag hallar ákaflega á konur í þessum efnum. Kona sem velur starfsframa umfram börn er dæmd á annan hátt en karlmaður sem gerir það.“ Kristín Marja grípur orðið og segir þessa togstreitu vera erfiða. „Þetta eru tvö sterkustu öflin í sálu mannsins. Ástin og listin. Ástin og draumarnir. Þegar slík öfl mætast þá gneistar á milli.“ Kristín Marja og Ólafur Egill eru í sömu sporum. Þau hafa unnið sinn hlut í verkinu og hafa nú sleppt af því tökunum til leikhússins. Ólafur segir það algjöra grundvallarreglu að geta gefið verkið frá sér. „Þó það sé gert í angist. Það er alltaf ákveðin angist í skapandi ferli. Angist, draumar og fullt af vinnu sem vonandi gerir sig þegar allt kemur saman. Á milli leiktextans í handritinu eru mínar hugmyndir um sviðsetningu, leiklýsingar, en ég veit að lögmálið er að yfirleitt er þeim hugmyndum kollvarpað – sem betur fer. Það er farsælast að sviðið fái að taka yfir og að ferðalagið sem leikhópurinn og leikstjórinn leggja upp í sé á þeirra forsendum. Þá blómstrar allt.“
Mest lesið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Minningar um líf sem er að hverfa Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Fleiri fréttir Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Sjá meira