Lífið

Fólk þurfti pásu frá mér

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Anne Hathaway, 31 árs, hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hún vann Óskarinn fyrir bestan leik í aukahlutverki fyrir Vesalingana í febrúar í fyrra. Hún er nú á Sundance-kvikmyndahátíðinni að kynna nýjustu mynd sína Song One.

„Mín tilfinning er að fólk þurfti pásu frá mér,“ segir Anne hlæjandi í viðtali við The Huffington Post.

Hún leikur mannfræðing í Song One sem snýr aftur til New York eftir að bróðir hennar slasast í bílslysi. Þá fer hún einnig með hlutverk í nýjustu mynd Christopher Nolan, Interstellar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.