Geðsjúkir fangar bíða enn eftir lækni 20. febrúar 2014 21:02 Vísir/Pjetur
Enginn geðlæknir starfar á Litla Hrauni og hefur ekki gert síðasta hálfa árið. Umboðsmaður Alþingis birti drög að skýrslu í október þar sem hvatt er til ýmissa úrbóta í heilbrigðisþjónustu við fanga. Heimsókn Umboðsmanns Alþingi í fangelsið Litla-Hrauni var liður í athugun á því hvort aðstæður í fangelsinu, aðbúnaður fanga og verklag við ákvarðanatöku um réttarstöðu þeirra samrýmist ákvæðum stjórnarskrárinnar, Mannréttindasáttmála Evrópu, gildandi laga og reglugerða um fullnustu refsinga auk meginreglna stjórnsýsluréttar. Um hálfu ári síðar kom út skýrsla þar sem kallað var eftir úrbótum, meðal annars á geðheilbrigðisþjónustu. Réttur geðsjúkra fanga til heilbrigðisþjónustu er sá sami og gildir um þá sem fyrir utan eru. Um þetta er skýrt kveðið í 22. gr. fangelsislaga en þar segir: „Í fangelsum skulu fangar njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir, auk þeirrar sérstöku heilbrigðisþjónustu sem lög og reglur um fanga segja til um." Fangar á Litla Hrauni njóta samkvæmt þessu ekki sömu réttinda og almenningur. Þar sem ekki hefur verið starfandi geðlæknir þar um tæplega hálfs árs skeið. Það er Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem heldur utan um geðlæknaþjónustu fangelsins og fær til þess ákveðið fjármagn frá Heilbrigðisráðuneyti. Í samtali við fréttastofu segir framkvæmdastjóri lækninga á HSu að ekki sé neinn starfandi geðlæknir á vegum stofnunarinnar almennt fyrir allt Suðurland. Það sé þó auðveldara fyrir geðsjúka utan fangelsis að leita sér þjónustu í höfuðborginni. En líkt og gefur að skilja njóta fangar ekki þeirra réttinda. Hann segir jafnframt að þeir geðlæknar sem starfað hafa í fangelsinu vilji fleira starfsfólk til aðstoðar sökum álags. Það séu því einfaldlega ekki til peningar til að mæta kröfum nútíma geðlækninga. En unnið sé þó að úrbótum.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira