Ferðast norður í land í félagsskap hrútavina Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. október 2014 16:00 "Ég hef verið alveg sérdeilis kvenheppinn um dagana,“ segir Sigurður dýralæknir sem hér er með seinni konu sinni, Ólöfu Erlu Halldórsdóttur. Mynd/úr einkasafni „
Ég hef nóg að gera og er ekkert farinn að eldast,“ segir hinn sjötíu og fimm ára Sigurður Sigurðarson dýralæknir hress. Hann er að leggja upp í ferð með glöðum hópi norður í land. „Við hjónin ætlum með hrútavinafélaginu Örvari norður í Þistilfjörð. Erindið er að koma uppstoppaða sauðnum Gorba á forystufjársetrið á Svalbarði sem hann Daníel Hansen opnaði í sumar. Þetta er rútuferð og einir 25 þátttakendur. Þeir sem standa fyrir þessu eru Björn Ingi Bjarnason, formaður hrútavinafélagsins, og Guðni Ágústsson, en Gorbi er frá Brúnastöðum eins og hann.“ Sigurður segir marga viðkomustaði á leiðinni. „Fyrst verður stoppað í Höfða þar sem leiðtoginn Gorbatsjov mætti á sínum tíma. Þangað kemur, að mér er sagt, rússneski sendiherrann til að kveðja þennan höfðingja.“ Á Sauðárkróki hefur Sigurður grun um eitthvert sprell í tilefni afmælis hans en gist verður á sjálfum Hólastað. Séra Sólveig Lára mun opna dómkirkjuna fyrir hrútavinum á morgun og þar ætlar Sigurður að kveða til dýrðar Hallgrími Péturssyni úr Passíusálmunum, enda afmælisár hjá báðum.Hann býst við að Gorbi verði borinn inn á hverjum stað og stökkt á hann eilífu vatni. „Ætli ég fari ekki með vatn úr Maríubrunninum á Keldum? Það hefur lækningamátt og hver veit nema hægt verði að kveikja líf með því,“ segir dýralæknirinn andaktugur þó hláturinn kraumi undir niðri. Árleg hrútahátíð með uppboði og markaðsstemningu verður á Raufarhöfn um helgina og þangað stefnir flokkurinn, með Níels Árna Lund sem sérlegan leiðsögumann um Þingeyjarsýslur. Í lokin verður hagyrðingamót og dansleikur. Þeir sem þekkja Sigurð vita að hann er söngelskur maður. „Ég hef enn gaman af að kveða og ætla hvar sem við komum að kenna mönnum að minnsta kosti eina stemmu,“ heitir hann. Annars er hann að ganga frá síðustu myndum í minningabókina Sigurður dýralæknir númer 2. Hún á að koma út í afmælismánuðinum og enn er hægt að skrifa sig á heillaóskalista. „En ég var of duglegur að skrifa og varð að henda út heilum kafla um presta sem var afskaplega slæmt því þeir eru mínir uppáhaldsmenn,“ segir hann. „Hreindýrin lentu út í kuldanum líka.“
Mest lesið Litríkur karakter sem var engum líkur Lífið Hulk Hogan er látinn Lífið Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Lífið Ein heitasta söngkona landsins á lausu Lífið Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Lífið Pamela smellti kossi á Neeson Lífið Rene Kirby er látinn Lífið „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Lífið Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar Lífið Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Menning Fleiri fréttir Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“