Strandamaðurinn sterki hengir upp sundskýluna Garðar Örn Úlfarsson skrifar 25. október 2014 07:00 Hreinn Halldórsson er Strandamaðurinn sterki sem yfirgefur sundlaugina sem hann hefur stýrt í meira en þrjátíu ár. Hreinn tók sér sumarfrí í gær en þá var síðusti dagur sumarsins. Mynd/Heiða Málfríður „
Ég er ekkert að gefa upp andann,“ segir Hreinn Halldórsson, kúluvarparinn ástsæli, sem um áramótin lætur af störfum sem forstöðumaður íþróttamannvirkja Fljótsdalshéraðs. „Mér bauðst annað starf vegna skipulagsbreytinga hjá bænum þannig að ég hoppa úr íþróttamiðstöðinni yfir á bæjarskrifstofur og mun sjá um mannvirki bæjarins,“ segir Hreinn um breytingarnar fram undan.Úr strætó á sundlaugarbakkann Hreinn átti afar farsælan feril sem kúluvarpari og var þrisvar útnefndur íþróttamaður ársins á Íslandi á árunum 1976 til 1979. Hreinn, sem er frá Hrófbergi á Ströndum og gengur undir nafninu Strandamaðurinn sterki, varð Evrópumeistari árið 1977. Áður en Hreinn fluttist til Egilsstaða árið 1982 og tók við sundlaug bæjarins ók hann strætisvögnum í Reykjavík í um áratug. Þá hafði hann fengið brjósklos í bak sem batt enda á keppnisferil hans. „Ég fór í brjósklosaðgerð á Landspítalanum og sá bara sæng mína útbreidda; nennti ekki í sama farið og flutti úr bænum og austur,“ rifjar Hreinn upp.Hreinn gekkst fyrir íþróttamótinu Strandamaðurinn sterki á Vilhjálmsvelli með aðstoða góðra manna í sumar. „Það má kannski segja að á þessari mynd sé ég í mínu rétta umhverfi,“ segir hann sjálfur.Aldrei getað kvartað undan verkefnaskorti Öll íþróttamannvirki Fljótsdalshéraðs heyra undir Hrein í núverandi starfi. Íþróttavellirnir munu fylgja honum áfram í nýja starfið. Núverandi forstöðumannsstarf hans var auglýst til umsóknar í vikunni og hann bíður eftirmannsins. „Ég heyrði í þeim sem tekur við umsóknum og það er þegar farið að spyrjast fyrir um starfið,“ segir Hreinn, sem aðspurður kveður mikla vinnu fylgja forstöðumannsstarfinu. „Þetta er eins og hjá bændunum; menn þurfa alltaf að vera til taks allan sólarhringinn. Ekki einn einasta dag hef ég getað leyft mér að kvarta undan því að ég hafi ekkert að gera,“ segir Strandamaðurinn sterki, sem finnst áratugirnir í sundlauginni hafa skotist hjá. „Ég er orðinn hundgamall og búinn að vera lengur en elstu menn muna – en samt hefur þetta liðið nokkuð fljótt.“
Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira