Tekur partíið á annað stig og gengur á vatni Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. maí 2014 12:30 mikið stuð Dj Margeir planar nú mikla útgáfugleði í Bláa lóninu í tilefni útgáfu plötunnar á heimsvísu.mynd/lilja birgisdóttir „
Platan var að koma í sölu og nú er skipulagning útgáfutónleikanna í Bláa lóninu í fullum gangi,“ segir Dj Margeir en þriðja platan í Bláalónssyrpunni hans, Blue Lagoon Soundtrack 3 er þó sú fyrsta sem kemur út á heimsvísu. Um er að ræða plötur þar sem Margeir velur lög úr öllum áttum, sem hann telur henta andrúmsloftinu og orkunni sem fyrirfinnst í Bláa Lóninu. Fyrri tvær plöturnar eru nú ófáanlegar en sú fyrsta fór í gullsölu. „Ég hef alltaf verið tengdur Bláa lóninu. Afi, sem þjáðist af psoriasis, tók mig reglulega með sér þegar ég var mjög lítill gutti og lónið var nánast ósnert og hrátt. Þá áttaði ég mig á því að það gæti verið magnað að tengja saman þetta ótrúlega fyrirbæri við tónlist. Samspil náttúru, orku og krafts sköpunar,“ útskýrir Margeir. Hann ætlar að fagna plötunni með veglegum gleðskap í lóninu á Jónsmessunótt. „Við erum að reyna að skapa eitthvað nýtt og spennandi, sviðið mun ná út í lónið, þannig að listamennirnir geta nánast gengið á vatni, en það ætti að henta Högna sérstaklega vel, en hann er að púlla lúkk frelsarans með stæl. Sannkallaður draumur á Jónsmessunótt,“ segir Margeir léttur í lundu. Á meðal þeirra listamanna sem koma fram með Margeiri eru til dæmis sveitir eins og President Bongo, Gluteus Maximus ásamt áðurnefndum Högna Egilssyni og Daníel Ágúst svo einhverjir séu nefndir. Platan er komin í sölu og miðasala á tónleikana er hafin á midi.is. „Miðað við öll þau partí sem ég hef spilað á í lóninu, á ég von á einstakri stemningu.“ Hann stefnir á frekara tónleikahald hér heima og erlendis í kjölfar plötunnar.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira