Aðstandendur látnu farþeganna fá 5000 dali Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. júlí 2014 13:54 vísir/afp
Fjölskyldur farþeganna sem létust í flugi MH17 síðastliðinn fimmtudag fá fimm þúsund Bandaríkjadali, sem jafngildir rúmlega hálfri milljón íslenskra króna, frá flugfélaginu Malaysian airlines. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flugfélaginu og er þetta ætlað til aðstoðar á erfiðum tímum aðstandenda. Ásamt þessu útvegar flugfélagið aðstandendum flugi til og frá Úkraínu, áfallahjálp, hótelgistingu og mat. Þá var jafnframt tilkynnt að fjárveitingin muni ekki dragast frá né hafa áhrif á aðrar skaðabætur aðstandenda seinna meir, né hafa áhrif á lagalegan rétt þeirra. 298 farþegar létust þegar vél Malaysia airlines var grandað í austurhluta Úkraínu síðastliðinn fimmtudag. Það er annað stórslys flugfélagsins á skömmum tíma, en hinn áttunda mars síðastliðinn hvarf farþegavél MH370 sporlaust yfir Indlandshafi. 239 manns voru í þeirri vél, sem þýðir að 534 hafa týnt lífi í tveimur flugum á vegum flugfélagsins á innan við hálfu ári.
MH17 Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira