Ekki ástæða til að hafa áhyggjur af verðhjöðnun Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. nóvember 2014 17:24 Ásgeir Jónsson dósent í hagfræði við hagfræðideild Háskóla Íslands. 365/ÞÞ
Verðbólga mælist nú 1% og hefur ekki verið lægri í 16 ár. Dósent í hagfræði segir ekki ástæður til að hafa áhyggjur af verðhjöðnun. Verðbólga hefur ekki verið minni frá síðasta fjórðungi ársins 1998. Að húsnæðislið undanskildum hefur verðlag raunar lækkað um 0,3% undanfarna 12 mánuði, sem er mesta lækkun vísitölunnar á þann kvarða allt frá því í október 1967. Verðbólgan hefur nú verið undir 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans í tíu mánuði í röð, eða frá því í febrúar á þessu ári. Verðhjöðnun er almenn lækkun verðlags, sem sagt andstæða verðbólgu. Eitt helsta stjórntæki seðlabanka, vextir, verður óvirkt í verðhjöðnun því vextir geta ekki farið undir 0 prósent. Þetta er í raun það ástand sem ríkir í mörgum ríkjum Evrópusambandsins um þessar mundir. Ásgeir Jónsson dósent í hagfræði við Háskóla Íslands segir ekki hættu á verðhjöðnun hér á landi þótt verðbólgan sé lág. Hann segist búast við að verðbólguþrýstingur taki við sér á nýju ári eftir undirritun kjarasamninga. „Ekki til lengri tíma. Við höfum séð verðbólgu ganga niður á þessu ári sem stafar af hlutum eins og lækkandi olíuverði. Við höfum einnig séð að væntingar um lækkun vörugjalda hefur kallað fram afslætti í verslunum. Síðan er seinni hluti kjarasamninga eftir þannig að það hafa ekki miklar launahækkanir komið fram. Sé litið fram á næsta ár þá myndi ég halda við sjáum aukinn verðbólguþrýsting. Ég hef ekki áhyggjur af þessu. Kjarasamningar eru lausir eftir áramót og atvinnuleysi hefur gengið niður,“ segir Ásgeir.
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira