„Hefur ekkert með ritskoðun að gera“ Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2014 16:30 Óðinn Jónsson og Gunnar Bragi Sveinsson en milli þessara tveggja andar nú köldu.
Sunna Gunnars Marteinsdóttir, aðstoðarkona utanríkisráðherra vísar öllum ummælum um að utanríkisráðherra stundi ritskoðun á bug.Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er nú staddur úti á Leifsstöð en hann mun taka þátt í ráðstefnu í London á morgun, á vegum The Economist, um norðurslóðamál. Hann kom því ekki við að veita Vísi viðtal vegna máls sem hefur valdið verulegum skjálfta meðal blaðamanna en RÚV greindi frá því í frétt í dag að Gunnar Bragi vilji ekki tala við RÚV nema að uppfylltum skilyrðum. Ingimar Karl Helgason blaðamaður hefur þegar skrifað um málið harðorðan pistil þar sem segir meðal annars: „Fulltrúar framsóknarflokksins og sjálfstæðisflokksins hafa haldið úti linnulausum árásum á almannaútvarpið. Ýmist með yfirlýsingum, hótunum eða beinum aðgerðum.“Hér má sjá hvernig samskipti ráðherra og fréttamanns RÚV, Kára Gylfasonar, voru. Það reyndist engum vandkvæðum bundið fyrir Heimi Má Pétursson fréttamann Stöðvar 2 að fá viðtal við Gunnar Braga. Þetta mun þó aðeins ná yfir brot af samskiptum ráðherra og fréttastofu en Óðinn Jónsson fréttastjóri RÚV heldur því fram að utanríkisráðherra hafi synjað Ríkisútvarpinu um „viðtal nema að hann fái eintak af því í heild, óklippt, eða viðtalið verði sent út beint. Óskað var eftir viðtali um ástandið í Úkraínu.“ Sunna Gunnars Marteinsdóttir aðstoðarkona ráðherra er í för með Gunnari Braga. Hún sagði í samtali við Vísi að ekki væri um að ræða ritskoðun að neinu leyti. „Þetta snýst að engu leyti um að ritskoða RÚV,“ segir Sunna og vísar til þess að ráðherra hafi einfaldlega verið ósáttur við frétt sem birtist fyrir helgi. Gunnari Braga fannst fréttamaður fara illa með það sem hann sagði þá. Og með það voru þau flogin.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira