Af göllum og hættum í tónlistarhúsinu Hörpu Örnólfur Hall skrifar 11. september 2014 07:00 Gallar (í smíði og hönnun) og hættur eru í Hörpu sem óvinsælt er að fjalla um opinberlega. Má t.d. nefna eftirfarandi:1) Aðalstigi Hörpu er í einu hlaupi og skáskorinn þannig að m.a. eldra fólk og fólk með skerta göngugetu á erfitt með að fóta sig og er uggandi í stiganum. Skáinn á honum beinir fólki út að handriðinu. Dæmi er um að kallað hafi verið eftir aðstoð í stiganum. Við arkitektar, sem höfum fylgst með Hörpu-„smíði“ frá 2010, fullyrðum að millipallur eigi að vera þar til öryggis skv. hönnunarreglum um stiga í leik- og tónlistarhúsum og sjá þá „Neufert/Bauentwurfslehre“ hönnunar- og regluhandbók allra arkitekta (alþjóðleg). Þar segir að 18 þrep sé hámarksfjöldi og svo komi pallur. Þeim mun meiri ástæða er fyrir palli að stiginn á líka að nýtast sem neyðarstigi í vá (í eldi, jarðskjálfta eða annarri vá). Hrasi einhver þarna við neyðarrýmingu gæti það valdið lífshættulegri skriðu fallandi fólks og því er pallur nauðsynlegur. Lesa má um slíka stiga í byggingarreglum nýrrar Mannvirkjastofnunar. Minnt skal á að tvisvar kom upp (skyndilega) eldur í Eldborgarsal á smíðatímanum.2) Handriðin uppi á svölum í Eldborgarsal eru hættulega lág. Mælast 71 cm og aðeins eru um 30 cm frá brún mjórra sætanna að handriði sem er hættulega lítið. Stór gestur sem fengi t.d. aðsvif eða misstigi sig getur hæglega fallið yfir handriðið. Samkvæmt byggingarreglum ættu handriðin að vera mun hærri. Spurt var hverjir samþykktu stigann og handriðin með tilliti til öryggis gesta og tóku út? Ekki hafa fengist svör frá Byggingafulltúaembættinu þar um.3) Af hættulegri stétt við malbikstorgið: Hellusteinarnir í stéttinni eru ekki fasaðir. Miðað við þá tegund má hæðarmismunur vera að hámarki 2 mm eftir niðurlögn. En hann hefur mælst þarna að 5 mm. Gestir hafa dottið kylliflatir og vitað er um slys. Hve margar lögregluskýrslur skyldu vera komnar vegna óhappa þarna? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kvenskörung á Bessastaði Þorbergur Þórsson Skoðun Ætlar auðvaldinu loks að takast að ráða í forsetaembættið? Reynir Böðvarsson Skoðun Brjótum heimsblað! Hallgrímur Helgason Skoðun Minn maður mun standa í lappirnar Helgi Pétursson Skoðun Gallar frambjóðandans - hjálparhönd til óákveðinna Gunnar Helgason Skoðun Traustir skulu hornsteinar Jakob Bragi Hannesson Skoðun Jón Þór Stefánsson Skoðun Kjósum forseta sem við treystum Ingileif Jónsdóttir Skoðun Hefur allt til brunns að bera Árný Björg Blandon Skoðun Hvers vegna kýs ég „nörd“ í smáríkjafræðum sem forseta? Steinn Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Jón Þór Stefánsson skrifar Skoðun Kvenskörung á Bessastaði Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Traustir skulu hornsteinar Jakob Bragi Hannesson skrifar Skoðun Ég treysti Katrínu Guðný Hildur Magnúsdóttir skrifar Skoðun ALDIN kallar eftir loftslagsaðgerðum Árni Bragason,Halldór Reynisson,Heiðrun Guðmundsdóttir,Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Gallar frambjóðandans - hjálparhönd til óákveðinna Gunnar Helgason skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnarformanns Gildis Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rjúfum þögnina: andlegt ofbeldi Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna kýs ég „nörd“ í smáríkjafræðum sem forseta? Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Kjósum húmanista – Konu hugsjóna og framkvæmdargleði Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óhollustan í að sópa gærdeginum undir teppi skrifar Skoðun Við eigum skilið Höllu Tómasdóttur! Thor Ólafsson skrifar Skoðun Halla Hrund Logadóttir: Framtíðarforseti Íslands? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Að sitja vel í sjálfri sér Kolbrún Sverrisdóttir skrifar Skoðun Halla Tómasdóttir fyrir okkur unga fólkið Kári Sigfússon skrifar Skoðun Kjósum alvöru forseta en ekki óbreytt ástand Kári Allansson skrifar Skoðun Ætlar auðvaldinu loks að takast að ráða í forsetaembættið? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Halla Hrund Logadóttir: Framtíðarforseti Íslands? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Ég kýs Katrínu! Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Opinber umræða í þágu hugsunar Gunnar Snorri Árnason skrifar Skoðun Hefur allt til brunns að bera Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Brjótum heimsblað! Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Kjósum forseta sem við treystum Ingileif Jónsdóttir skrifar Skoðun Það skiptir máli hver er forseti landsins Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Sjálfstæði eða fall? Ágústa Ágústsdóttir skrifar Skoðun Afturbatapíka í skilgreiningu HKL Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Ó, vakna þú mín Þyrnirós! Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Kryddum tilveruna í skrautbúning Ásdís Rán Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er landið stjórnlaust og býr þjóðin við valdníðslu og rányrkju? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hví Halla Hrund? – Skyldulesning! Ole Anton Bieltvedt skrifar Sjá meira
Gallar (í smíði og hönnun) og hættur eru í Hörpu sem óvinsælt er að fjalla um opinberlega. Má t.d. nefna eftirfarandi:1) Aðalstigi Hörpu er í einu hlaupi og skáskorinn þannig að m.a. eldra fólk og fólk með skerta göngugetu á erfitt með að fóta sig og er uggandi í stiganum. Skáinn á honum beinir fólki út að handriðinu. Dæmi er um að kallað hafi verið eftir aðstoð í stiganum. Við arkitektar, sem höfum fylgst með Hörpu-„smíði“ frá 2010, fullyrðum að millipallur eigi að vera þar til öryggis skv. hönnunarreglum um stiga í leik- og tónlistarhúsum og sjá þá „Neufert/Bauentwurfslehre“ hönnunar- og regluhandbók allra arkitekta (alþjóðleg). Þar segir að 18 þrep sé hámarksfjöldi og svo komi pallur. Þeim mun meiri ástæða er fyrir palli að stiginn á líka að nýtast sem neyðarstigi í vá (í eldi, jarðskjálfta eða annarri vá). Hrasi einhver þarna við neyðarrýmingu gæti það valdið lífshættulegri skriðu fallandi fólks og því er pallur nauðsynlegur. Lesa má um slíka stiga í byggingarreglum nýrrar Mannvirkjastofnunar. Minnt skal á að tvisvar kom upp (skyndilega) eldur í Eldborgarsal á smíðatímanum.2) Handriðin uppi á svölum í Eldborgarsal eru hættulega lág. Mælast 71 cm og aðeins eru um 30 cm frá brún mjórra sætanna að handriði sem er hættulega lítið. Stór gestur sem fengi t.d. aðsvif eða misstigi sig getur hæglega fallið yfir handriðið. Samkvæmt byggingarreglum ættu handriðin að vera mun hærri. Spurt var hverjir samþykktu stigann og handriðin með tilliti til öryggis gesta og tóku út? Ekki hafa fengist svör frá Byggingafulltúaembættinu þar um.3) Af hættulegri stétt við malbikstorgið: Hellusteinarnir í stéttinni eru ekki fasaðir. Miðað við þá tegund má hæðarmismunur vera að hámarki 2 mm eftir niðurlögn. En hann hefur mælst þarna að 5 mm. Gestir hafa dottið kylliflatir og vitað er um slys. Hve margar lögregluskýrslur skyldu vera komnar vegna óhappa þarna?
Skoðun ALDIN kallar eftir loftslagsaðgerðum Árni Bragason,Halldór Reynisson,Heiðrun Guðmundsdóttir,Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar