Úttekt á viðunandi framfærslu Þorbera Fjölnisdóttir skrifar 11. september 2014 07:00 EAPN (European Anti Poverty Network) eru evrópsk samtök sem mynduð eru af frjálsum félagasamtökum sem hafa það í markmiðum sínum að vinna að málefnum fátækra. EAPN lítur svo á að fátækt og félagsleg einangrun séu brot á grundvallarmannréttindum. Orsakavaldar fátæktar eru flókið samspil margra ólíkra þátta og því þarf að ráðast gegn þeim á breiðum grunni. Þær aðgerðir sem stjórnvöld hérlendis, sem og annars staðar í Evrópu, hafa gripið til í þeim tilgangi að draga úr fátækt hafa ekki dugað og eru þeir sem bjuggu við kröppust kjör fyrir efnahagshrunið jafnvel enn verr settir nú en áður. EAPN á Íslandi – samtök gegn fátækt voru stofnuð í nóvember árið 2011. Það er mikilvægt að starfið einskorðist ekki við höfuðborgarsvæðið og því er búið er að stofna deild innan samtakanna á Akureyri og einnig er starfandi hópur á Suðurnesjum. Jafnframt hefur verið unnið að því að fjölga aðildarfélögum. Hafin er vinna við heimasíðu EAPN á Íslandi og einnig er unnið að því að útbúa kynningarefni fyrir samtökin. Árleg PeP-samkoma (People experiencing Poverty) var haldin í fyrrasumar í Brussel en þar kemur saman fólk víðs vegar að úr Evrópu sem býr við fátækt og félagslega einangrun. Það var virkur hópur þriggja kvenna frá Suðurnesjum sem fór utan ásamt fulltrúa stjórnar EAPN á Íslandi. Samkoman var mikil upplifun fyrir konurnar sem komu úr erfiðum aðstæðum. Þátttaka í PeP-samkomum hefur verið mjög valdeflandi fyrir þá einstaklinga sem þær hafa sótt og í mörgum tilfellum verið vendipunktur þar sem fólk öðlast nýja sýn og finnur hjá sér kjark til að takast á við aðstæður sínar.Gagnkvæmur stuðningur EU Inclusion Strategies Group er vinnuhópur innan EAPN. Meginmarkmið hópsins er að fylgjast með stefnu og aðgerðum stjórnvalda til að draga úr fátækt. Á það bæði við um Evrópusambandið og stjórnvöld í hverju landi fyrir sig. Mjög mikilvægt er að upplýsingarnar séu nýttar til að þrýsta á stjórnvöld að bregðast við þar sem þörf er á. Hópurinn er vettvangur fyrir gagnkvæman stuðning milli meðlima EAPN víðs vegar í Evrópu í baráttu þeirra gegn fátækt. Árlega svarar hvert land ítarlegum spurningalista um aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar með áherslu á hvað hún hyggst gera til að draga úr fátækt. Þessi vinna hefur reynst mjög gagnleg við að sjá hvað hefur verið gert og hvað ekki til að draga úr fátækt hér á landi. Í nóvember sl. héldu Evrópusamtökin aðalstjórnarfund í Reykjavík. EAPN á Íslandi sá um undirbúning fundarins. Þurftum við einnig að leggja til fjármuni vegna fundarins og tókst það m.a. með styrkjum frá aðildarfélögum samtakanna. Allt skipulag og aðstaða var til mikillar fyrirmyndar. Á síðasta ári hófst vinna við svokallað EMIN-verkefni innan EAPN sem hefur það markmið að finna út hvað þarf í hverju landi fyrir sig til að fólk geti lifað mannsæmandi lífi, þ.e. hvað er viðunandi framfærsla. Í EMIN verkefninu erum við hluti af norrænum hópi sem er undir leiðsögn Dana en hópurinn leitast m.a. við að svara þeirri spurningu hvort til sé norrænt velferðarkerfi. Unnin hefur verið skýrsla á vegum EAPN á Íslandi um stöðuna hér á landi. Tekin voru viðtöl við ýmsa aðila, s.s. fólk sem býr við fátækt, fræðimenn og fulltrúa verkalýðsfélaga. Þann 19. september nk. verður haldin ráðstefna á vegum samtakanna þar sem EMIN-verkefnið og úttekt á viðunandi framfærslu á Íslandi verður kynnt. Niðurstaða skýrslunnar mun án efa verða sterkt vopn í baráttunni fyrir bættum lífskjörum þeirra sem búa við kröppust kjör hér á landi. Ráðstefnan er öllum opin og er þátttaka ókeypis. Skráning er til 16. september á heimasíðu Öryrkjabandalags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar