Lífið

Hvað gerist næst? Kúlan og hárblásarinn

Vilhelm Anton Jónsson og Vísir bjóða hér upp á skemmtilegan leik fyrir lesendur.

Í myndskeiðinu hér fyrir ofan gerir Villi tilraun úr Vísindabók Villa 2 með borðtenniskúlu og hárblásara, sem byggir á loftþrýstingi.

Villi klárar þó ekki tilraunina í dag heldur spyr: Hvað gerist næst?

Þeir lesendur sem vita svarið geta valið einn af eftirfarandi valmöguleikum og svarað í athugasemdum við fréttina eða á netfangið ritstjorn@visir.is.

Valmöguleikarnir eru:

a) Boltinn þeytist út í geim.

b) Loftþrýstingurinn heldur boltanum á sínum stað.

c) Villi fær raflost. 



Þeir lesendur sem svara rétt fara í pott sem dregið verður úr. Í verðlaun er eintak af Vísindabók Villa 2, sem er full af tilraunum og fróðleik um allt milli himins og jarðar.



Hvað gerist næst? Svaraðu hér fyrir neðan.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×