Lífið

Öll bestu atriði Áttunnar í einum graut

Strákarnir í Áttunni, þeir Róbert, Egill og Nökkvi, voru að klára sína aðra þáttaröð á Bravó.

Í lokaþættinum grófu þeir upp öll bestu atriðin sem þeir hafa gert núna í haust og skeyttu þeim saman í ofur Áttuþátt. Byggðu þeir meðal annars á því hvaða atriði hafa slegið mest í gegn hér á Vísi.

„Við fórum alltaf út í búð og keyptum okkur DVD með 70 mínútum hér áður fyrr. Nú erum við búnir að klippa saman best of-pakka úr okkar þætti og viljum gefa þjóðinni hann,“ segir Nökkvi.

Þátturinn fór í loftið á fimmtudag og í honum má einnig finna myndband við Þetta er Áttan, nýtt lag eftir strákana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×