Málaferlum um verðtryggð neytendalán frestað Stefán Árni Pálsson skrifar 9. desember 2014 15:52 Vilhjálmur Bjarnason, formaður stjórnar HH. vísir
Málaferlum vegna verðtryggðra neytendalána hefur verið frestað til 5. janúar 2015 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna. Þar kemur fram að samtökin hafi frá því snemma árs 2012 staðið að undirbúningi dómsmáls í því skyni að láta reyna á lögmæti kynningar á eiginleikum verðtryggðra lána fyrir neytendum. „Eftir mikla þrautagöngu um refilstigu dómskerfisins verður málið nú loksins tekið til aðalmeðferðar, en það hafði verið sett á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 8. desember 2014,“ segir í tilkynningunni. Á þeim tíma sem liðið hafi síðan þessi vegferð hófst hafi fleiri aðilar höfðað til svipaðra eða sambærilegra mála. „Leitað hefur verið álits EFTA-dómstólsins vegna tveggja þeirra, og liggja þau álit nú fyrir. Samkvæmt upplýsingum sem nýlega bárust frá héraðsdómi hefur dómstjóri ákveðið að þau þrjú mál sem hér um ræðir verði flutt fyrir fjölskipuðum héraðsdómi. Þá hefur dómari í því máli sem Hagsmunasamtök heimilanna standa að lýst því yfir að við úrlausn þess ætli hann að taka mið af álitum EFTA-dómstólsins úr hinum tveimur málunum.“ Í tilkynningunni segir að þessi breyting á meðferð málsins hafi í för með sér frestun aðalmálflutnings fram yfir áramót, og núna sé búið að ákveða dagsetningu aðalmeðferðar hinn 5. janúar 2015. „Þrátt fyrir að þetta séu í raun jákvæðar fréttir, þýða þær að meðferð málsins mun frestast enn um sinn, og verður því ekki að vænta niðurstöðu héraðsdóms fyrr en í janúar eða febrúar næstkomandi.“ Málatilbúnaður á vegum samtakanna hafi frá öndverðu byggst á því að ekki hafi verið gætt að skilyrðum laga um neytendalán þegar veittar voru upplýsingar um lánskostnað og árlega hlutfallstölu kostnaðar miðað við að verðbólga yrði 0% þannig að raunverulegur kostnaður við verðtryggingu hafi ekki verið tekinn með í reikninginn og hafi neytendum þar af leiðandi verið veittar rangar upplýsingar um kostnað við slíka lántöku. „Þetta sjónarmið var í raun staðfest í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins í máli E-27/13 þann 24. nóvember síðastliðinn, en að mati Hagsmunasamtaka heimilanna er það til þess fallið að styrkja grundvöll málaferlanna auk þess að renna sterkum stoðum undir ákvörðun Neytendastofu nr. 8/2014.“ Hagsmunasamtök heimilanna leggja áherslu á að málaferlum þessum verði flýtt eins og kostur er, í samræmi við 183. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála sem kveður á um flýtimeðferð dómsmála er varða lögmæti vísitölubundinna lána. „Neytendur eru hvattir til að fylgjast vel með framgangi málaferla um verðtryggð neytendalán, sem verður tilkynnt nánar um eftir því sem fram vindur. Einnig eru þeir sem sótt hafa um leiðréttingu verðtryggða fasteignaveðlána á vegum stjórnvalda hvattir til að nýta sér þann frest sem veittur verður fram í marsmánuð 2015, til þess að samþykkja niðurstöður leiðréttingar eða gera athugasemdir við þær eftir því sem tilefni þykir í hverju tilviki.“
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Sjá meira