Jón Arnór aftur með og Unicaja komst aftur á sigurbraut Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 22:21 Jón Arnór Stefánsson reynir hér skot í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson spilaði sinn fyrsta leik síðan í lok október í kvöld þegar lið hans Unicaja Malaga vann öruggan sigur á króatíska liðinu Cedevita Zagreb í Euroleague, Meistaradeild Evrópu í körfuboltanum. Unicaja Malaga vann leikinn með níu stigum, 82-73, eftir að hafa verið einu stigi undir etir fyrsta leikhlutann, 22-23, og þremur stigum yfir í hálfleik, 44-41. Jón Arnór var búin að missa af síðustu fimm leikjum með Unicaja Malaga vegna meiðsla á nára og liðið hafði aðeins náð að vinna tvo þeirra en báðir leikirnir án hans í Euroleague höfðu sem dæmi tapast. Unicaja Malaga hefur nú unnið alla leiki sem Jón Arnór hefur spilað á tímabilinu. Jón Arnór náði þó ekki að skora á þeim tæpu fjórum mínútum sem hann fékk á vellinum í kvöld. Jón Arnór klikkaði á eina skotinu sínu sem kom fyrir utan þriggja línuna og þá átti hann eina stoðsendingu á félaga sína. Jasmin Repesa, þjálfari Cedevita Zagreb, þekkir vel til Jóns Arnórs en þeir unnu silfur saman á Ítalíu vorið 2008 þegar Jón lék með Lottomatica Roma og Repesa þjálfaði hann.
Körfubolti Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira