Heilsa

Ómótstæðileg og bráðholl pizza

Rikka skrifar
visir/sæunn

Á vefsíðunni Hugmyndir að hollustu er að finna aragrúa af gómsætum og hollum uppskriftum sem auðvelt er að leika eftir og njóta samviskulaust.

Sæunn Ingibjörg uppskriftahönnuður býður lesendum Heilsuvísis að þessu sinni upp á frábæra uppskrift af bráðhollri og trefjaríkri pizzu sem enginn verður svikinn af. 



Pizzabotn:

250 g grófmalað spelt

1 krukka hvítar baunir, skolaðar og vatnið sigtað frá

2 tsk vínsteinslyftiduft

vatn - eftir þörfum

Maukaðu hvítu baunirnar og hnoðaðu þær saman við þurrefnin. Bættu vatni við eftir þörfum (stundum þarf mikið vatn og stundum ekki neitt). Rúllaðu deigið út með kökukefli, gataðu með gaffli og forbakaðu það við 180 gráður þar til brúnirnar eru stökkar. Þetta á að vera þunnur botn og ef það er óbærilega erfitt að fletja deigið gæti vantað meira vatn í það en svo má auðvitað mýkja það með smáræði af lífrænni olíu. Lagaðu botninn hvernig sem þér dettur í hug, hvort sem er í  mörg lítil stykki eða eitt stærra.



Hummus:

1 krukka kjúklingabaunir, skolaðar og vatnið sigtað frá

1 msk Tahini

1-2 hvítlauksrif

2 tsk reykt papríkukrydd

2 msk næringarger

safi úr 1/2 límónu

Þú býrð hummusinn til í matvinnsluvél með því einfaldlega að blanda öllum hráefnunum vel saman. Þegar botninn er bakaður smyrðu svo u.þ.b. hálfs sentimetra lagi af hummus yfir en ef einhver afgangur verður geymist hann í loftþéttu íláti í ísskáp í nokkra daga (nema þú borðir hann fyrst!). Í stað þess að setja skalottlaukinn út í grænkálssalatið skar ég hann í sneiðar og stráði ríflega yfir hummusinn. Skalottlaukur er frekar sætur og dásamlegur eftir að hann hefur verið bakaður svo hér er meira = betra. Þú bakar svo pizzuna með hummus í nokkrar mínútur eða þar til hann er rétt farinn að brúnast á jöðrunum.



Grænkálssalat

1 poki grænkál

handylli sólþurrkaðir tómatar

2-3 hvítlauskrif

safi úr 1/2 sítrónu

handfylli hráar pistasíuhnetur

nokkrar þurrkaðar döðlur

1 skalottlaukur, fínsaxaður

Maukaðu sólþurrkaða tómata, hvítlauk, hnetur og sítrónusafa í matvinnsluvél. Skolaðu grænkálið og rífðu það af stilkunum áður en þú rífur það niður í smærri bita. Blandaðu saman grænkáli og mauki með því að hnoða þetta allt saman rækilega með höndunum. Það mýkir kálið og gerir áferðina á því ómótstæðilega. Settu salatið í lokin á bakaðan botninn og stráðu söxuðum döðlum yfir ásamt pistasíuhnetum til skrauts.


Tengdar fréttir

Hugarfarið breyttist á einni nóttu

Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×