Viðskipti innlent

Hringdu lokar á Deildu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs, Hringdu.
Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs, Hringdu. vísir/aðsend
Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í október að leggja fram fyrir Sýslumanninn í Reykjavík að leggja lögbann á fjarskiptafyrirtækin geti veitt viðskiptamönnum sínum aðgang að vefsíðunum www.deildu.net, www.deildu.com, www.thepiratebay.se, www. thepiratebay.sx og www.thepiratebay.org.

Í tilkynningu frá fjarskiptafyrirtækinu Hringdu kemur fram að fyrirtækið mun verða að beiðni Sýslumannsins og loka á téðar síður. Frá deginum í dag mun Hringdu loka fyrir síðurnar.

„Frá upphafi þessa máls hefur Hringdu mótmælt kröfum STEF enda telur fyrirtækið það ekki hlutverk fjarskiptafyrirtækja að ritskoða netumferð viðskiptavina sinna og benti m.a. á í málsvörn sinni að aðgangur að veraldarvefnum er skilgreindur sem grundvallarmannréttindi í tilskipun nr. 2009/140/EB hjá Evrópusambandinu,“ segir í tilkynningunni frá Hringdu.

Fyrirtækið heldur því fram að réttast hefði verið af STEF að beina lögbannskröfum sínum að rekstraraðilum ThePirateBay og Deildu.net í stað Hringdu og annarra fjarskiptafyrirtækja.

„Á það var einnig bent að margar aðrar sambærilegar vefsíður séu starfandi sem ekki var krafist lögbanns á og að öllum mögulegum hindrunum yrði auðvelt að komast framhjá.“

„Að okkar mati er þetta lögbann algjörlega tilhæfislaust og í raun beiðni um ritskoðun á internetinu. Niðurstaðan er íslenskum neytendum verulegt áhyggjuefni og gæti gefið fordæmi fyrir frekari ritskoðun internetsins” segir Kristinn Pétursson, forstöðumaður sölu- og þjónustusviðs, Hringdu.

Hringdu telur að mikilvægt sé að að höfundarréttur sé virtur en þetta sé ekki rétta leiðin.

„Áætlað er að 20.000 heimili kaupi sér áskrift að Netflix og að hátt í 8.000 einstaklingar séu með áskrift að Spotify. Það segir okkur að Íslendingar vilja greiða fyrir afþreyingu. Á endanum snýst þetta allt um aðgengi,” bætir Kristinn við að lokum.


Tengdar fréttir

Hafa ekki verið beðin um að loka á Deildu og Piratebay

Framkvæmdastjórar þriggja fjarskiptafyrirtækja hafa ekki verið beðnir um að loka fyrir aðgang að skráaskiptasíðunum Deildu og Piratebay. STEF segir umfang málsins ástæðuna og að haft verði samband við fyrirtækin.

Umræða um lögbann og ólögmætt niðurhal á villigötum

Þann 14. október s.l. kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp tvo úrskurði þar sem lagt var fyrir Sýslumanninn í Reykjavík, að beiðni STEFs, samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, að leggja lögbann á þá háttsemi tveggja fjarskiptafyrirtækja að veita viðskiptavinum sínum aðgang að vefsíðum, sem þekktar eru fyrir ólögmæta dreifingu á höfundarréttarvörðu efni, nefnilega piratebay og deildu.

Marcel Siem stal sigrinum í Shanghai

Alexander Levy tapaði niður fjögurra högga forystu á lokahringnum og Siem nýtti sér það með því að vippa í fyrir fugli í dramatískum bráðabana.

Ungur Kanadamaður lék best allra í Mississippi

Nick Taylor var sjóðandi heitur með pútterinn á lokahringnum á Sanderson Farms meistaramótinu og tryggði sér sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni á ferlinum.

Vodafone ætlar ekki að áfrýja

Vodafone ætlar ekki að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur vegna lögbanns á skráaskiptasíðurnar deildu.is og Pirate Bay.

Vodafone ekki lokað á síðurnar

Í ljósi frétta af dómi héraðsdóms í máli STEF gegn Vodafone fyrr í dag hefur Vodafone sent frá sér yfirlýsingu.

Síminn lokar á Deildu og Piratebay á morgun

„Í ákvörðun sýslumanns felst að Síminn loki á aðgang að sex slóðum að tveimur netsíðum sem bjóða höfundavarið efni án leyfis efniseigenda.“

Lokað á Deildu.net

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp úrskurðar Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF, gegn fjarskiptafyrirtækjunum Vodafone og Hringdu.

Vodafone lokar líka á Deildu og Pirate Bay

Fyrirtækið vísar í að sýslumaðurinn hafi lagt lögbann við þeirri athöfn að veita viðskiptamönnum aðgang að völdum skráarskiptisíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×