15 mánaða fangelsi fyrir að keyra dópaður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. nóvember 2014 15:56 Með brotum sínum rauf maðurinn reynslulausn og var meðal annars horft til þess við ákvörðun refsingar. Vísir
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir að hafa í tvígang ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fyrra atvikið átti sér stað í mars á þessu ári og það síðara í maí. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum ævilangt. Gefnar voru út tvær ákærur á hendur manninum. Í báðum tilvikum var hann ákærður fyrir akstur undir áhrifum amfetamíns og kannabis. Maðurinn neitaði að sök í fyrri ákæru og sagðist ekki hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Hann hafi gleypt poka með einu grammi af amfetamíni áður en lögreglan hafði afskipti af honum því hann vildi ekki vera tekinn fyrir vörslu fíkniefna. Þá hafi hann verið með vini sínum deginum áður. Vinurinn hafi verið að reykja kannabis og þær óbeinu reykingar geti skýrt hvers vegna kannabis mældist í þvagi hans. Maðurinn játaði svo skýlaust þau brot sem honum voru gefin að sök í seinni ákærunni. Dómurinn taldi framburð ákærða ekki trúverðugan og í engu samræmi við gögn málsins. Miðað við gögn málsins og framburð annarra vitna, þar á meðal lögreglumanna, taldi dómurinn það hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði ekið undir í mars. Með brotum sínum rauf hann reynslulausn sem honum hafði verið veitt í mars 2012. Þá hafði hann þrisvar sinnum áður verið tekinn fyrir akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna. Var til þess horft þegar refsing var ákveðin, 15 mánaða fangelsi og svipting ökuréttinda ævilangt. Dóminn í heild sinni má nálgast hér.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira