Carmelo í 20 þúsund stiga klúbbinn | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. nóvember 2014 07:45 Carmelo Anthony í leiknum í nótt. Vísir/AP
Carmelo Anthony varð í nótt 40. leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að skora 20 þúsund stig á ferlinum er hann skoraði 28 stig í sigri New York á Charlotte, 96-93. Anthony skoraði körfuna sem sá til þess að Charlotte náði ekki að brúa bilið þegar rúm mínúta var til leiksloka en þetta var annar sigur New York í röð. Amar'e Stoudemire skoraði sautján stig fyrir liðið en Al Jefferson 21 fyrir Charlotte. Chris Bosh skoraði 21 stig og tók ellefu fráköst fyrir Miami sem vann Toronto, 107-102, á heimavelli. Dwayne Wade var með nítján stig, ellefu fráköst og sjö stoðsendingar en Miami hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa á tímabilinu. Luol Deng var einnig öflugur með átján stig. DeMar DeRozan skoraði 30 stig fyrir Toronto sem tapaði fyrsta leiknum sínum á tímabillinu í nótt. Liðið hefur ekki unnið Miami síðan á vormánuðum 2010. Sacramento vann LA Clippers, 98-92, í Kaliforníuslag þar sem DeMarcus Cousins skoraði 34 stig og tók sautján fráköst. Rudy Gay var með 25 stig en bæði lið hafa nú unnið tvo leiki en tapað einum. Blake Griffin og Spencer Hawes skoruðu báðir sautján stig fyrir Clippers. Golden State vann að síðustu Portland, 95-90. Klay Thompson tryggði gestunum sigur með körfu þegar 8,7 sekúndur voru eftir en hann skoraði alls 29 stig í leiknum. Golden State er ósigrað eftir þrjá leiki á tímabilinu.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira