Venjum og siðum hent út um gluggann Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 13:12
Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands er búið að frumsýna stiklu fyrir leikrit sitt Rómeyju og Júlíu sem frumsýnt verður þann 7. nóvember næstkomandi. Verkið er byggt á einni frægustu ástarsögu heims, Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare. Rán Ísold Eysteinsdóttir, formaður Listafélags Verzlunarskóla Íslands segir að hún hafi strax orðið ástfangin af hugmyndinni um að setja upp verkið. „Aftur á móti var töluvert taboo að takast á við Shakespeare og oft spruttu upp efasemdir varðandi skemmtanagildi leikritsins. (Sem er skondið þar sem Shakespeare flokkaði verkið sem gamanleikrit.),“ skrifar Rán í leikskrá fyrir verkið. „Rómeyja og Júlía. Þegar þessi samsetning orða dundi í eyrum okkar í fyrsta skipti á hundraðasta brainstorm fundinum þá litum við hvort á annað og eins og ekkert væri sjálfsagðara varð valið augljóst. Við skyldum setja upp Rómeyju og Júlíu, frægustu ástarsögu heims í okkar eigin búning. Stríðinu milli heilahvelanna var lokið og ég er ekki frá því að það hafi verið jafntefli,“ bætir Rán við um tilurð uppsetningarinnar. „Við fórum í raun öfuga leið að uppsetningu þessa verks enda er venja og siður að velja verkið fyrst en svo leikstjórann. Bjarni Snæbjörnsson leikstjóri bauð fram sína hjálp við að henda bæði venjunum og siðunum út um gluggann og var hann með okkur hvert skref þessa ævintýris með þýðingu Hallgríms Helgasonar að vopni. Talandi um vopn þá lagði Arnoddur Magnús Danks okkur hjálpar sverð við sviðsbardagana í sýningunni,“ skrifar Rán en mikill fiðringur er í Verzlingum fyrir frumsýningunni.
Mest lesið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Birta og Króli eiga von á dreng Lífið Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn Lífið Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Menning „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Fleiri fréttir Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Sjá meira