Upplifði ofbeldi í ástarsamböndum Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 30. október 2014 22:00 Jennifer Lopez. vísir/getty
Söng- og leikkonan Jennifer Lopez opnar sig í endurminningum sínum, True Love, sem koma út innan skamms. Í bókinni segist hún hafa upplifað ofbeldi í ástarsamböndum sínum en nafngreinir ekki þá sem beittu hana ofbeldi. „Ég hef aldrei fengið glóðurauga eða sprungna vör en mér hefur fundist ég hafa verið beitt ofbeldi á einn eða annan hátt: andlega, tilfinningalega og með orðum,“ skrifar Jennifer. Hún segir einnig frá því af hverju hún skildi við tónlistarmanninn Marc Anthony árið 2011 en þau eiga saman tvíburana Max og Emme sem eru sex ára.Bók Jennifer heitir True Love.Endurminningar Jennifers urðu að bók sem hún ætlaði ekki að skrifa eins og hún segir frá í viðtali við tímaritið People. „Þetta byrjaði sem aðdáendabók, dagbók um árin sem ég var á tónleikaferðalagi. En hún varð að einhverju öðru. Ég byrjaði að skoða hluti og bókin hjálpaði mér að horfast í augu við margt. Ég myndi aldrei lýsa samböndum mínum í smáatriðum og ég geri það ekki en hugmyndin var að ég lærði eitthvað,“ segir hún. Jennifer, sem hefur verið gift þrisvar sinnum, segist hafa lært mikið um ást og hvað það þýðir að standa með sjálfri sér. „Dagurinn sem þú labbar ekki út, sem þú sættir þig við eitthvað í fari maka þíns og þíns sjálfs er dagurinn sem þú samþykkir svona hegðun,“ skrifar hún í bókinni. Hún segir að Marc Anthony styðji hana í skrifunum. „Hann las hana og sagði: Vá, ég fattaði ekki að þú værir að ganga í gegnum þetta. Við reynum að styðja hvort annað. Okkur finnst það best fyrir börnin.“
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira