Hausnum stungið í gagnasandinn Frosti Ólafsson skrifar 15. október 2014 07:30 Á undanförnum vikum hefur Viðskiptaráð Íslands deilt við BSRB um þróun í fjölda opinberra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði. Þær deilur hófust í kjölfar fundar Viðskiptaráðs um ríkisfjármál þar sem fram kom að opinberum störfum hefði fjölgað hraðar en störfum á almennum vinnumarkaði á undanförnum árum. Sú þróun er varhugaverð af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi eru opinber störf fjármögnuð í gegnum skattkerfið og því mikilvægt að fjöldi þeirra haldist í hendur við þróun starfa í einkageiranum. Að öðrum kosti er fjármögnun þeirra ekki sjálfbær. Í öðru lagi dregur mikill fjöldi starfsmanna úr getu hins opinbera til að bjóða samkeppnishæf launakjör. Afleiðingin verður minni framleiðni og aukin starfsmannavelta. Í stað þess að taka þátt í umræðu um lausnir á þessum vanda kaus BSRB að fara í hártoganir um hvort fjölgunin hafi átt sér stað hjá ríki eða sveitarfélögum og á hvaða árabili fjölgunin átti sér stað. Þetta skýtur skökku við, enda hlýtur það að vera meginmarkmið samtakanna að tryggja samkeppnishæf starfskjör félagsmanna sinna en ekki fjölgun opinberra starfa. Þannig er hausnum stungið í sandinn fremur en að ræða breytingar sem geta snúið þessari þróun við.Aðgengi og áreiðanleika gagna er ábótavant Upplýsingar og gagnsæi knýja fram breytingar. Gott dæmi um þetta er virkni fjármálamarkaða. Fyrirtæki keppa um fjármagn og gefa út ítarlegar upplýsingar um rekstur sinn svo fjárfestar geti tekið ákvarðanir um mögulegar fjárfestingar. Liggi þær upplýsingar ekki fyrir munu fáir vilja fjárfesta í viðkomandi félagi. Þetta upplýsingaaðhald hvetur fyrirtækin enn fremur til að taka til í rekstri sínum og gera hann samkeppnishæfan við önnur félög. Hið opinbera þarf ekki að keppa um fjármagn og því eiga sömu samkeppnislögmál ekki við í rekstri þess. Rekstrarumbætur eiga sér því ekki stað nema einstaklingar beiti sér fyrir því. Virk miðlun áreiðanlegra gagna gegnir þar lykilhlutverki. Deilur Viðskiptaráðs og BSRB eru birtingarmynd þess vanda sem fylgir skorti á upplýsingamiðlun. Fullnægjandi gögn um fjölda opinberra starfa eru ekki aðgengileg og því hefur umræðan snúist um áreiðanleika gagnanna í stað þeirra umbóta sem ráðast mætti í. Afleiðing þessa er að umræðu um aukna hagkvæmni í opinberum rekstri hefur verið drepið á dreif.Eitt dæmi af mörgum Þetta er fjarri því að vera eina dæmið um skort á fullnægjandi gögnum fyrir upplýsta umræðu. Á fundi Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins í síðustu viku sagði menntamálaráðherra að sér liði eins og hann væri að stýra farþegaþotu með afar fáum mælum. Gögn um íslenska skólakerfið séu svo fátækleg að það standi breytingum fyrir þrifum. Þá hefur umræða um landbúnaðarmál liðið fyrir sama gagnaskort. Í báðum tilfellum er um að ræða málaflokka þar sem tækifæri til umbóta eru veruleg. Viðnám við breytingum er undantekningarlítið til staðar þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Ef þær upplýsingar sem skipta máli fyrir ákvarðanatöku liggja fyrir er hins vegar hægt að beina umræðunni í markvissari farveg. Í öllum ofangreindum dæmum er hægt að framkvæma breytingar sem koma sér betur fyrir alla hagsmunaaðila innan kerfisins en núverandi fyrirkomulag. Til að svo megi verða þarf að gera sömu aðilum kleift að sjá skóginn fyrir trjánum.Án breytinga ríkir stöðnun Það er hluti af mannlegu eðli að vera illa við breytingar. Á sama tíma eru breytingar grunnforsenda efnahagslegra og samfélagslegra framfara. Með þetta í huga er opin og málefnaleg umræða um þau tækifæri sem við höfum til að gera betur einn helsti drifkraftur bættra lífskjara. Til að virkja slíka umræðu þarf bæði áreiðanlegar upplýsingar og lausnamiðuð viðhorf. Hvort tveggja skortir í dag. Þessu þarf að breyta nema svo ólíklega vilji til að sátt ríki um stöðnun. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson Skoðun Halldór 27.12.2025 Halldór Skoðun Skoðun ESB: Penninn og sverðið, aðgangur og yfirráð Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Aftur um Fjarðarheiðargöng Stefán Ómar Stefánsson van Hagen skrifar Skoðun Hitamál - Saga loftslagsins Höskuldur Búi Jónsson skrifar Skoðun Von, hugrekki og virðing við lok lífs Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hverjum þjónar kerfið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Vínsalarnir og vitorðsmenn þeirra Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun RÚV: Þú skalt ekki önnur útvörp hafa! Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Áramótaannáll 2025 Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Vonin sem sneri ekki aftur Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglugerðir og raunveruleiki rekast á Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugmyndafræðilegur hornsteinn ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hinn falski raunveruleiki Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar Skoðun Alvarlegar rangfærslur í Hitamálum Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Verður Hvalfjörður gerður að einni stærstu rotþró landsins? Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Fleiri ásælast Grænland en Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Mótmæli frá grasrótinni eru orðin saga í Evrópu Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er tímabili friðar að ljúka árið 2026? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Reykvískir lýðræðisjafnaðarmenn – kjósum oddvita Freyr Snorrason skrifar Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Sjá meira
Skoðun Viðskilnaður Breta við ESB: Sársauki, frelsi og veðmálið um framtíðina Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Bandaríkin léku lykilhlutverk í samruna Evrópu sem leiddi til friðar og efnahagslegrar velsældar Kristján Vigfússon skrifar
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar