Laxabitaverksmiðjunni skipað upp á Bíldudal Kristján Már Unnarsson skrifar 26. september 2014 19:30
Flutningaskip er komið til Bíldudals með fiskréttaverksmiðju frá Noregi sem verður meginþáttur 150 nýrra starfa Arnarlax á sunnanverðum Vestfjörðum. Um borð í flutningaskipinu Hauki eru 200 tonn af tækjum og vélarhlutum. Aðaleigandi Arnarlax, Bílddælingurinn Matthías Garðarsson, er að flytja laxabitaverksmiðju, sem hann byggði upp í Norður-Noregi, í heilu lagi inn í sitt gamla byggðarlag við Arnarfjörð. Á Hálogalandi í Noregi störfuðu eitthundrað manns í verksmiðjunni við að fullvinna laxabita í neytendaumbúðir fyrir Evrópumarkað og það sama er ætlunin að gera á Bíldudal. Framundan er að reisa nýtt verksmiðjuhús á uppfyllingu í útjaðri þorpsins en Arnarlax er þegar kominn með fyrstu kynslóð laxa í eldi í kvíum á Arnarfirði.Smærri einingar hífðar upp í fiskkörum úr flutningaskipinu Hauki.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Matthías segir að fyrirtækið sé þegar komið með leyfi fyrir 3.000 tonna laxeldi en beðið sé eftir leyfi fyrir 10.000 tonnum, sem er forsendan fyrir hráefnisöflun í matvælaframleiðsluna. Ekki sé ráðlegt að byggja nýja verksmiðju fyrr en leyfið sé í höfn en hann vonast til að það fáist í kringum næstu áramót. Framkvæmdir á nýju lóðinni geti þá farið á fullt í vor.Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 segir Matthías að fáist leyfi fyrir 10.000 tonna laxeldi þýði það 150 störf hjá Arnarlaxi; í verksmiðjunni, við sjókvíaeldið og við seiðaeldisstöð fyrirtækisins. Hann var sjálfur á lyftaranum að aka vélarhlutunum inn í hús þar sem þeim verður komið fyrir til bráðabirgða en hjá Arnarlaxi starfa þegar milli 20 og 25 manns. „Það er auðséð að okkar innkoma hér á Bíldudal hefur haft feiknarlega mikið að segja. Það er búið að flytja hingað hellingur af fólki í sumar, fjölskyldur, og ungt fólk komið í skólann. Það er tekið eftir þessu. Þannig að hér er mikil bjartsýni," segir Matthías.
Tengdar fréttir Vestfirðingur í Noregi vill reisa laxaréttaverksmiðju á Bíldudal Íslendingur, sem rekur matvælafyrirtæki í Noregi, vill leggja þrjá milljarða króna í laxeldi í Arnarfirði og fiskréttaverksmiðju á Bíldudal og skapa þannig yfir fimmtíu ný störf á Vestfjörðum. 16. nóvember 2011 18:57 Laxeldi í sjó verði stöðvað Orri Vigfússon, helsti baráttumaður fyrir verndun villtra laxastofna, vill að stjórnvöld stöðvi nú þegar allt laxeldi í sjó. Hann óttast umhverfisslys. Laxeldi í sjókvíum stefnir í að verða umfangsmikil atvinnugrein, eins og fram kom í frétt Stöðvar 2 úr Arnarfirði í fyrradag. Orri Vigfússon vill að stjórnvöld grípi nú þegar í taumana. "Mér finnst að það eigi að stoppa þetta strax, já," segir Orri í viðtali í fréttum Stöðvar 2. 15. mars 2013 18:45 Segir reglurnar eins og menn vilji ekkert fiskeldi á Íslandi Reglur um fiskeldi á Íslandi eru svo fráhrindandi að það er eins og menn vilji ekkert fiskeldi. Þetta segir maður með reynslu frá Noregi sem vill hefja laxeldi á Vestfjörðum. 17. nóvember 2011 19:07 Matthías mættur til að skapa 150 störf á Bíldudal Laxeldi stefnir í að valda byltingu á Vestfjörðum á næstu árum og skapa mörghundruð störf. Matthías Garðarsson, fiskeldisfrömuður í Noregi, kom til landsins fyrir helgi til að byggja upp 150 manna fyrirtæki á Bíldudal. 3. júní 2013 18:45 Fiskeldismenn kalla eftir vegabótum á Vestfjörðum Milljarðauppbygging fiskeldis á Vestfjörðum kallar á stórfelldar vegabætur strax, segir framkvæmdastjóri Arnarlax. Vegirnir á Vestfjörðum séu einfaldlega ónýtir. Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki er að flytja alla starfsemi sína frá Norður-Noregi til sunnaverðra Vestfjarða og hyggst byggja þar seiðaeldisstöð, laxasláturhús og fiskréttaverksmiðju í nafni Arnarlax. Náttúrulegar aðstæður í Arnarfirði þykja ákjósanlegar en annað gildir um innviði eins og vegi sem ráðamenn félagsins segja að verði að bæta. "Þetta er mjög einfalt mál. Vegirnir eru ónýtir. 16. mars 2013 21:23 Laxeldi á Vestfjörðum eins og ígildi álvers Uppbygging laxeldis stefnir í að hafa sambærileg og jafnvel meiri áhrif á sunnanverðum Vestfjörðum og stóriðjuframkvæmdirnar höfðu fyrir Austurland, segir bæjarstjóri Vesturbyggðar. 4. júní 2013 19:21 Norsk matvælaiðja flytur til Bíldudals Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki hefur ákveðið að flytja alla starfsemi sína til Vestfjarða og reisa fiskréttaverksmiðju á Bíldudal en með því skapast 130 ný störf. Framkvæmdir hefjast strax í sumar og verður þetta ein stærsta erlenda fjárfesting í sögu fjórðungsins. Flugvél Flugfélagsins Ernis lenti á Bíldudalsflugvelli í dag með 350 þúsund laxahrogn og það þótti hæfa að Viilborg Jónsdóttir ljósmóðir á Bíldudal tæki á móti þessari fyrstu kynslóð væntanlegra eldislaxa sem verða grunnur mikillar uppbyggingar á vegum Arnarlax. 13. mars 2013 19:32 Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Fleiri fréttir Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Sjá meira
Vestfirðingur í Noregi vill reisa laxaréttaverksmiðju á Bíldudal Íslendingur, sem rekur matvælafyrirtæki í Noregi, vill leggja þrjá milljarða króna í laxeldi í Arnarfirði og fiskréttaverksmiðju á Bíldudal og skapa þannig yfir fimmtíu ný störf á Vestfjörðum. 16. nóvember 2011 18:57
Laxeldi í sjó verði stöðvað Orri Vigfússon, helsti baráttumaður fyrir verndun villtra laxastofna, vill að stjórnvöld stöðvi nú þegar allt laxeldi í sjó. Hann óttast umhverfisslys. Laxeldi í sjókvíum stefnir í að verða umfangsmikil atvinnugrein, eins og fram kom í frétt Stöðvar 2 úr Arnarfirði í fyrradag. Orri Vigfússon vill að stjórnvöld grípi nú þegar í taumana. "Mér finnst að það eigi að stoppa þetta strax, já," segir Orri í viðtali í fréttum Stöðvar 2. 15. mars 2013 18:45
Segir reglurnar eins og menn vilji ekkert fiskeldi á Íslandi Reglur um fiskeldi á Íslandi eru svo fráhrindandi að það er eins og menn vilji ekkert fiskeldi. Þetta segir maður með reynslu frá Noregi sem vill hefja laxeldi á Vestfjörðum. 17. nóvember 2011 19:07
Matthías mættur til að skapa 150 störf á Bíldudal Laxeldi stefnir í að valda byltingu á Vestfjörðum á næstu árum og skapa mörghundruð störf. Matthías Garðarsson, fiskeldisfrömuður í Noregi, kom til landsins fyrir helgi til að byggja upp 150 manna fyrirtæki á Bíldudal. 3. júní 2013 18:45
Fiskeldismenn kalla eftir vegabótum á Vestfjörðum Milljarðauppbygging fiskeldis á Vestfjörðum kallar á stórfelldar vegabætur strax, segir framkvæmdastjóri Arnarlax. Vegirnir á Vestfjörðum séu einfaldlega ónýtir. Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki er að flytja alla starfsemi sína frá Norður-Noregi til sunnaverðra Vestfjarða og hyggst byggja þar seiðaeldisstöð, laxasláturhús og fiskréttaverksmiðju í nafni Arnarlax. Náttúrulegar aðstæður í Arnarfirði þykja ákjósanlegar en annað gildir um innviði eins og vegi sem ráðamenn félagsins segja að verði að bæta. "Þetta er mjög einfalt mál. Vegirnir eru ónýtir. 16. mars 2013 21:23
Laxeldi á Vestfjörðum eins og ígildi álvers Uppbygging laxeldis stefnir í að hafa sambærileg og jafnvel meiri áhrif á sunnanverðum Vestfjörðum og stóriðjuframkvæmdirnar höfðu fyrir Austurland, segir bæjarstjóri Vesturbyggðar. 4. júní 2013 19:21
Norsk matvælaiðja flytur til Bíldudals Norskt fiskeldis- og matvinnslufyrirtæki hefur ákveðið að flytja alla starfsemi sína til Vestfjarða og reisa fiskréttaverksmiðju á Bíldudal en með því skapast 130 ný störf. Framkvæmdir hefjast strax í sumar og verður þetta ein stærsta erlenda fjárfesting í sögu fjórðungsins. Flugvél Flugfélagsins Ernis lenti á Bíldudalsflugvelli í dag með 350 þúsund laxahrogn og það þótti hæfa að Viilborg Jónsdóttir ljósmóðir á Bíldudal tæki á móti þessari fyrstu kynslóð væntanlegra eldislaxa sem verða grunnur mikillar uppbyggingar á vegum Arnarlax. 13. mars 2013 19:32