Lífið

Joan Rivers enn á gjörgæslu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Getty
Grínistinn Joan Rivers er ennþá á gjörgæsludeild en hún hætti að anda í miðri hálsskurðaðgerð í síðustu viku.

„Ég veit að þessi gríðarlegi kærleikur væri yfirþyrmandi fyrir hana móður mína og ég vil þakka öllum sem hefur beðið fyrir okkur,“ skrifar dóttir hennar, Melissa Rivers á Facebook-síðu Joan.

Heimildarmaður nákominn fjölskyldunni segir við New York Daily News að verið sé að vekja Rivers úr dái. „Það eru miklar áhyggjur yfir því að sá hluti heilans sem stjórnar hreyfifærni hafi orðið fyrir skemmdum,“ segir hann.

Annar heimildarmaður segir að fjölskylda Rivers vilji hugsanlega lögsækja sjúkraheimilið sem sá um skurðaðgerðina misheppnuðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×