Erlent

Sex mánuðir í dag frá hvarfi flugs Malaysian Airlines MH370

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
239 manns hurfu sporlaust þann 8. mars á þessu ári.
239 manns hurfu sporlaust þann 8. mars á þessu ári. Vísir/AP
Flug 370 frá Kuala Lumpur til Beijing með Malaysia Airlines hvarf fyrir 6 mánuðum í dag en enn finnst hvorki tangur né tetur af flugvélaflakinu.

239 farþegar voru um borð í vélinni sem hvarf af ratsjá en veðurskilyrði voru góð þetta laugardagskvöld. Hvarfið var dularfullt svo ekki sé meira sagt. Ýmsar tilgátur voru uppi og mörgum spurningum ósvarað. Hér má finna greinagóða umfjöllun Vísis um fyrstu dagana eftir hvarfið.

Hafa útilokað 4,5 milljónir ferkílómetra í dag 

Nú um hálfu ári síðar hefur ekkert fundist, hvorki flakið né nokkrar líkamsleifar af þeim 227 farþegum og 12 meðlimum áhafnar sem um borð voru, og spurningunum er enn ósvarað. Það sem yfirvöld telja sig þó vita er að flugvélin hafi horfið 8. mars í Suður-Indlandshafi. Gervihnattagögn og upplýsingar af ratsjá gefa til kynna að vélin hafi sveigt af þeirri braut sem hún átti að fljúga. Talið er líklegt að hún hafi hrapað á þeim tíma sem eldsneyti hennar rann út. Af hverju vélin hélt ekki fyrirfram ákveðinni stefnu er ekki vitað.

Leitað var að flakinu samfleytt í nærri tvo mánuði og í dag hefur verið leitað í 4,5 milljónum ferkílómetra í hafinu. Fjölskyldur farþeganna um borð í MH370 bíða enn svara.

Ásakanir voru uppi um misjafna hegðun þeirra flugmann sem flugu vélinni.
Hefja nýja leit í september á eldfjallasvæði

Nýjasta vísbendingin er þó rétt um tíu daga gömul og yfirvöld hafa því ekki gefist upp á leitinni. Sú vísbending kemur frá símtali sem starfsmaður flugvélagsins reyndi morguninn sem flugvélin hvarf. Eftir að hafa greint símtalið hefur það leitt betur í ljós hvar flugvélin var þegar hún sveigði af flugbraut sinni. En gögnin sýna að þotan hafi mögulega farið af leið fyrr en áður var talið. Næsti hluti leitarinnar mun beina sjónum að 60 þúsund ferkílómetra svæði í Suður-Indlandshafi. Leitin á að hefjast seint í september og koma að henni þrjú skip sem nota margvísleg háþróuð tæki svo sem ómsjár eða hljóðsjár. Leitin kemur til með að taka um ár og mun kosta 48 milljónir bandaríkjadala eða tæpa 5,7 milljarða íslenskra króna.

Nú þegar hefur verið tekið til við að undirbúa leitina og hafa skip siglt á svæðinu sem hefur lítið sem ekkert verið rannsakað í gegnum tíðina. Svæðið getur reynst erfitt leitarskipum. Forskoðun á því hefur sýnt að þar lúra neðansjávareldfjöll og þar eru brattir kambar.

Mikil fjárhagsleg áhrif

Hvarf vélarinnar hefur haft mikil áhrif á fjárhagslega afkomu flugfélagsins Malaysian airlines.

Sérstaklega eftir að önnur flugvél á vegum flugfélagsins, flug 17, var skotin niður þar sem hún flaug yfir landhelgi Úkraínu í Júlí. Um sex þúsund manns hafa misst vinnuna.

Fjölskyldumeðlimir farþeganna voru í áfalli eins og gefur að skilja en þeir bíða enn svara.vísir/getty
.


Tengdar fréttir

Farþegaþota hvarf af radar

Vélin er á vegum Malaysian Airlines en í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að vélin hafi horfið af radar á sjöunda tímanum í gær, nokkrum klukkustundum eftir flugtak.

Leit hafin að svarta kassanum neðansjávar

Leitarsveitir á Indlandshafi eru nú byrjaðar að nota bergmálsmælitæki til þess að reyna að staðsetja svarta kassann svokallaða úr þarþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs.

Franskir sérfræðingar til aðstoðar

Nú þykir ljóst að vél Malaysian Airlines var á flugi í meira en sex klukkustundir eftir að slökkt var á sambandi við flugstjórn. Yfirvöld í Kasakstan segja útilokað að vélin hafi flogið yfir lofthelgi þeirra og því er skoðað hvort vélinni hafi verið flogið til suðurs, yfir Indlandshaf.

Brak úr vélinni mögulega fundið á Indlandshafi

Ástralar telja sig mögulega hafa fundið brak á gervitunglamyndum sem gæti verið úr Boeing þotu Malaysian Airlines sem hvarf þann áttunda mars síðastliðinn með 239 manns innanborðs skömmu eftir flugtak frá Kuala Lumpur.

Farþegavél hvarf af ratsjá

Víðtæk leit stendur yfir á Suður- Kínahafi að farþegaþotu Malaysian Airlines sem hvarf af radar í gærkvöldi. 239 manns voru um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×