Jón Arnór verður ekki með Íslandi í undankeppninni Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. ágúst 2014 16:15 Jón Arnór Stefánsson á æfingu landsliðsins í dag. vísir/daníel
Jón Arnór Stefánsson, besti körfuboltamaður Íslands, verður ekki með landsliðinu í undankeppni EM 2015 eins og talið var. Þetta var tilkynnt á æfingu landsliðsins í Laugardalshöll í dag. Jón Arnór er samningslaus og koma tryggingamál í veg fyrir að hann geti spilað með landsliðinu gegn Bretlandi og Bosníu í undankeppninni. Þar sem hann er samningslaus er ekki hægt að tryggja hann, en ef Jón væri búinn að skrifa undir við eitthvað lið væri hægt að tryggja þann samning og þ.a.l. gæti hann spilað með Íslandi. Samningur Jóns hjá spænska úrvalsdeildarliðinu CAI Zaragoza, sem hann hefur spilað með undanfarin þrjú ár rann út eftir síðasta tímabil. Ljóst er að þetta er mikið áfall fyrir íslenska liðið sem gerði sér vonir um sæti á EM, en tveir sigrar á löskuðu liði Breta myndu mögulega duga íslenska liðinu á stórmót í fyrsta skipti. Jón Arnór hefur eins og allir vita verið fremsti körfuboltamaður þjóðarinnar um árabil, en í undankeppninnni 2012 var hann langbesti maður liðsins; stiga- og stoðsendingahæstur. Jón Arnór tók þessu ákvörðun í samráði við þjálfara liðsins sem og stjórn KKÍ. Viðtal við Jón Arnór birtist á Vísi síðar í kvöld.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Linsan datt út en varði samt tvö víti Enski boltinn Sonur Rickys Hatton tjáir sig: „Elska þig, pabbi“ Sport Hákon reyndist hetja Brentford Enski boltinn Sjáðu mörkin úr einum ótrúlegasta hálfleik í sögu Meistaradeildarinnar Fótbolti Ronaldinho og Usain Bolt reyna fyrir sér í þjálfun Sport NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Körfubolti Dagskráin í dag: Boltinn rúllar í Meistaradeildinni Sport Skoraði nánast alveg eins mark í fyrra en Del Piero gerði betur Fótbolti „Vissi ekki að við gætum þetta“ Fótbolti Magnaður viðsnúningur hjá Aserum Fótbolti Fleiri fréttir NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Caitlin Clark ekki meira með á tímabilinu Sjá meira