Skellti Real Madrid og kominn í NBA Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. júní 2014 20:30 Blatt með afrakstur síðasta vetrar vísir/afp
NBA körfuboltaliðið Cleveland Cavaliers í Bandaríkjunum hefur ráðið David Blatt sem þjálfara sinn en hann gerði Macabbi Tel Aviv að Evrópumeisturum í vor. Ráðningin á Blatt kemur mörgum á óvart vegna þess að hann hefur hvorki reynslu af NBA sem þjálfari né leikmaður. Engu að síður er hann reyndur þjálfari sem hefur náð glæstum árangri. Hann þjálfaði lið Macabbi Tel Aviv sem gerði sér lítið fyrir og skellti Real Madrid óvænt í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í vor. Í kjölfar sigursins sagði Blatt að hann hefði mikinn áhuga á að þjálfa í NBA. „Það er enginn vafi í mínum huga að ég ræð við að þjálfa í NBA. Það þarf bara einhver að vilja mig,“ sagði Blatt og Cavaliers vildi hann. Blatt hefur þrisvar verið valinn þjálfari ársins í Ísrael og einu sinni í Rússlandi en hann hefur að auki þjálfað lið á Ítalíu, Grikklandi og í Tyrklandi. Blatt gat sér mjög gott orð sem landsliðsþjálfari Rússlands. Rússland gerði hann að Evrópumeisturum 2007 og fjórum árum síðar stýrði hann liðinu til bronsverðlauna. Ári seinna vann Rússland brons á ólympíuleikunum í London undir hans stjórn.
NBA Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Sjá meira