Telur breyttan veg ekki leyfa nýtt umhverfismat Kristján Már Unnarsson skrifar 25. júní 2014 20:00 Hreinn Haraldsson vegamálastjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra skoðuðu Teigsskóg í fyrrasumar. Fréttablaðið/Daníel
Framtíðarlega Vestfjarðavegar um Gufudalssveit er í algerri óvissu eftir að Skipulagsstofnun gerði Vegagerðinni ljóst að hún myndi ekki fallast á að vegur um Teigsskóg færi í nýtt umhverfismat með breyttri veglínu.Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld var leiðin upp á Ódrjúgsháls sýnd sem lýsandi dæmi um vandann, en þar er annar af tveimur fjallvegum á leiðinni. Þarna eru hlykkjóttir og mjóir malarvegir með blindhæðum og hengiflugi á köflum, sem jafnvel á sumrin virkar glæfralegt, hvað þá í hálku og myrkri að vetri.Leiðin sem Vegagerðin vill fara með Vestfjarðaveg til að losna við fjallvegina um Hjallaháls og Ódrjúgsháls.Nú þegar séð er fram á verklok í vegagerð vestar í Barðastrandarsýslum, um Kjálkafjörð og Kerlingarfjörð, þykir orðið aðkallandi að fá niðurstöðu um hvernig síðustu þrjátíu kílómetrarnir af Vestfjarðavegi um Gufudalssveit verða byggðir upp með bundnu slitlagi. Til að losna við hálsana tvo hafa sveitarstjórnir á Vestfjörðum ásamt Vegagerðinni viljað láglendisveg um Teigsskóg ásamt þverun tveggja fjarða en mætt andstöðu landeigenda og umhverfisverndarsamtaka. Leið um Teigsskóg var hafnað með Hæstaréttardómi fyrir fimm árum en núverandi ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, fól Vegagerðinni engu að síður í fyrra að fara með nýja veglínu í umhverfismat. Fyrri tillaga gerði ráð fyrir að allt að tólf prósent af skóglendinu myndi raskast en ný tillaga, sem flytur veglínuna upp fyrir skóginn að austanverðu, og niður fyrir hann að vestanverðu, gerir ráð fyrir að eitt prósent af skóginum raskist, og segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri að slíkt teljist óveruleg röskun. Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar, segir hins vegar ekki unnt að líta á þessa nýju veglínu sem nýja framkvæmd og þar sem þegar sé búið að hafna leið um Teigsskóg telji stofnunin ekki lagalegar heimildir til að hefja nýtt matsferli. Stofnunin hafi hinsvegar bent Vegagerðinni á aðrar leiðir, eins og að óska eftir endurskoðun á umhverfismatinu vegna breyttra forsendna. Vegamálastjóri segist nú ætla að ræða við ráðuneytið um næstu skref.Húsmæður á Vestfjörðum mótmæltu með búsáhöldum á frægum fundi á Patreksfirði haustið 2011 þeirri stefnumörkun Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi innanríkisráðherra, að hafna láglendisleið um Teigsskóg.Myndir/Egill Aðalsteinsson.Þetta mál brennur einna brýnast á íbúum þorpanna á sunnanverðum Vestfjörðum; Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals, en hversu lengi þeir mega búa við malarvegina hlykkjóttu er núna í fullkominni óvissu.
Tengdar fréttir Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03 Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56 Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15 Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, er búin að snúa við ákvörðun forvera sín, Ögmundar Jónassonar, um Teigsskóg.. 18. júní 2013 18:55 Hanna Birna til fundar við Vestfirðinga um vegamál Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur fallist á að funda með Vestfirðingum um hvort Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg, og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar. 17. júní 2013 21:14 Mest lesið Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Rússar og Úkraínumenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Fleiri fréttir Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Sjá meira
Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56
Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15
Leið um Teigsskóg í nýtt umhverfismat Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, er búin að snúa við ákvörðun forvera sín, Ögmundar Jónassonar, um Teigsskóg.. 18. júní 2013 18:55
Hanna Birna til fundar við Vestfirðinga um vegamál Nýr ráðherra vegamála, Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur fallist á að funda með Vestfirðingum um hvort Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg, og að snúið verði við synjun Ögmundar Jónassonar. 17. júní 2013 21:14