Metnaðarfyllsta uppfærsla Stuðmanna Baldvin Þormóðsson skrifar 12. júní 2014 17:26 Hrafn Gunnlaugsson sá um að stýra þriggja manna teymi sem gerði plakötin fyrir Tívolíið. mynd/einkasafn „
Mér er sagt að þetta sé metnaðarfyllsta uppfærsla Stuðmanna til þessa,“ segir Jakob Frímann Magnússon, Stuðmaður en hljómsveitin undirbýr stórtónleika í Hörpu byggða á breiðskífunni Tívolí.„Þarna var sleginn óvenjulegur tónn með því að gera gamla skemmtigarðinn í Vatnsmýrinni að einhverskonar spegilmynd samfélagsins á seinni hluta síðustu aldar,“ segir Jakob en Tívolíið í Vatnsmýri var á sínum tíma vinsælasta afþreyingarsvæði fólks í Reykjavík.„Frímann flugkappi var táknmynd bandaríkjahers, Hveitibjörn var táknmynd pólitískrar spillingar, Hr. Reykjavík samnefnari íslenska einfeldningsins og Fjallkonan reiðubúin að fórna meydómi sínum,“ segir Jakob og bætir því við að á tónleikunum sem verða í haust munu mun fleiri persónur bætast við flóruna.„Í nýju uppfærslunni þá er spegilmyndin uppfærð til 21. aldarinnar,“ segir Stuðmaðurinn. „Lykilpersónurnar eru þær sömu en það fjölgar mjög í furðufuglabúrinu. Ætli það verði ekki á þriðja tug listamanna á sviðinu á einum og sama tímanum.“ Jakob segir það hafa lengi brunnið á hljómsveitarmeðlimum að halda þessa tónleika en árið 2014 hafi verið valið þar sem það markar 40 ára útgáfusögu Stuðmanna.Miðasala hefst í dag og segir Jakob það vera til þess að fólk geti búið sig andlega undir tónleikanna. ,,Það er ekki hægt að hella sjóðheitri tívolísúpu yfir heila þjóð án nokkurrar viðvörunar eða aðdraganda,'' segir Jakob Frímann. ,,Það eru nú einkunnarorð sveitarinnar að Stuðmenn vilja engan særa.''Miða má nálgast á heimasíðu midi.is.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira