Formúla 1

Alonso kom á óvart á æfingum í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Alonso ekur um götur Mónakó í dag.
Alonso ekur um götur Mónakó í dag. Vísir/Getty
Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari kom á óvart á seinni æfingu dagsins í Mónakó og setti besta tímann. Fyrri æfing dagsins fór hins vegar eins og fyrirfram var við að búast. Mercedes trónaði þar á toppnum. Lewis Hamilton var þremur hundruðustu úr sekúndu fljótari en liðsfélagi sinn Nico Rosberg.

Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji á fyrri æfingunni. Liðsfélagi hans Sebastian Vettel varð fimmti, á eftir Alonso sem varð fjórði.

Seinni æfingin hófst á blautri braut. Fyrstu 30 mínúturnar var einn hringur ekinn, Valtteri Bottas fór út á brautina á Williams bíl sínum.

Jean-Eric Vergne á Toro Rosso tróðs sér í fjórða sætið á milli Bottas í því fimmta og Vettel í því þriðja á seinni æfingunni.

Kimi Raikkonen lauk æfingunni snemma vegna vandræða en hann ók aðeins fjóra hringi á seinni æfingunni.

Tímatakan fyrir Mónakó kappaksturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 11:50 á laugardaginn. Keppnin sjálf er svo á dagskrá klukkan 11:30 á sunnudag.


Tengdar fréttir

Hamilton verður nær ósigrandi

Fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu 1 telur að Lewis Hamilton eigi bara eftir að bæta við forskotið í heimsmeistarakeppni ökuþóra.

Lotus trúir að bíllinn henti í Mónakó

Lotus liðið stefnir á enn eitt framfarastökkið í viðbót í Mónakó um helgina. Eftir að Romain Grosjean náði í fyrstu stig liðsins á tímabilinu í Barcelona. Liðið er bjartsýnt á enn betri árangur í Mónakó.

Rosberg þarf betri ræsingar

Nico Rosberg ætlar sér að stöðva sigurgöngu liðsfélaga síns hjá Mercedes, Lewis Hamilton í Mónakókappakstrinum næstu helgi. Rosberg segir að betri ræsingar séu lykilatriði ef það á að gerast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×