NBA: LeBron James með 49 stig og nýtt Miami-met Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2014 07:30 LeBron James var heitur í nótt. Vísir/Getty
LeBron James og félagar í Miami Heat eru komnir í 3-1 í einvíginu á móti Brooklyn Nets í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir sex stiga sigur í Brooklyn í nótt. Portland Trailblazers er enn á lífi eftir sigur á San Antonio Spurs en Spurs gat með sigri orðið fyrsta liðið til að komast upp úr annarri umferðinni.LeBron James jafnaði sitt persónulega met í úrslitakeppni og setti nýtt Miami-met þegar hann skoraði 49 stig í 102-96 sigri á Brooklyn Nets í Brooklyn í nótt. Miami er komið í 3-1 og getur tryggt sér sæti í næstu umferð með sigri á heimavelli í næsta leik. Chris Bosh kom Miami yfir þegar 57 sekúndur voru eftir og Miami-menn lönduðu sigrinum í kjölfarið. James átti möguleika á því að skora sitt fimmtugasta stig en klikkaði á víti þegar 1,1 sekúnda var eftir af leiknum. James hitti úr 16 af 24 skotum sínum utan af velli og 14 af 19 vítum sínum. Hann skoraði áður 49 stig í einum leik í úrslitakeppninni fyrir Cleveland á móti Orlando í úrslitum Austurdeildarinnar árið 2009. Dwyane Wade var með 15 stig en hann missti þarna félagsmetið yfir flest stig í leik í úrslitakeppninni sem var 46 stig. Chris Bosh skoraði 12 stig. Joe Johnson var stigahæstur hjá Brooklyn Nets með 18 stig og Paul Pierce kom næstur með 16 stig.Damian Lillard var með 25 stig þegar Portland Trail Blazers vann 103-92 sigur á San Anontio Spurs og kom í veg fyrir sóp en Spurs er nú 3-1 yfir. Frakkinn Nicolas Batum var mjög öflugur fyrir Trail Blazers liðið en hann var með 14 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar í leiknum. Tony Parker skoraði "bara" 14 stig en hann hafði skoraði 29 stig eða meira í þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Parker og Tim Duncan komu ekki meira við sögu eftir að Portland náði 20 stiga forskoti í þriðja leikhlutanum.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira