Erlent

Rob Ford ekki af baki dottinn

Rob Ford.
Rob Ford. vísir/afp
Rob Ford, sem var sviptur völdum sem borgarstjóri Toronto í skugga ásakana um spillingu og fíkniefnamisferli, er ekki af baki dottinn og hefur hafið baráttu sína til endurkjörs í embætti borgarstjóra.

Ford ávarpaði stuðningsmenn sína í Toronto Congress Centre í gær, á sama stað og hann fagnaði kjöri sem borgarstjóri fyrir fjórum árum.

Borgarstjórnarkosningarnar í Toronto, sem er stærsta borg Kanada, verða hinn 27. október næstkomandi.

Ford náði kjöri fyrir fjórum árum meðal annars vegna áherslna sinna um að sporna gegn óábyrgri meðferð skattfjár í borgarkerfinu. Hann sækir stuðning sinn aðallega til úthverfa Toronto.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×