Skoðun

SÁÁ-mafían?

Hilmar Hansson skrifar
Málefni SÁÁ (Samtök áhugafólks um áfengis og vímuefnavandann) hafa nokkuð verið til umræðu að undanförnu.

Rótin, félag um málefni kvenna með áfengis og fíknivanda og nokkrir starfsmenn SÁÁ hafa lagt þar orð í belg. Valgerður Rúnarsdóttir skrifar grein á saa.is þann 17. jan s.l. og segir þar m.a. „aðgát skal höfð í nærveru sálar“ En það gera stjórnendur SÁÁ hins vegar ekki.

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir og Hjalti Björnsson, dagskrárstjóri eru harðstjórar og þeir fara illa með vald sitt og fé skattgreiðenda.

Hulda Eggertsdóttir skrifar grein á visir.is þann 6. mars s.l. og segir m.a. „Síðustu 37 árin hefur meðferðin þróast“ En ég  spyr á móti: Hefur meðferðin þróast í rétta átt?

Kristbjörg Halla Magnúsdóttir skrifar grein á visir.is og saa.is þann 6. febrúar s.l. og segir m.a.

„Gagnrýni er af hinu góða, ef fólk þekkir efnistökin vel og er að rýna til gagns“

Til þess að SÁÁ geti boðið upp á góða og árangursríka meðferð sem þróast í takt við aukna þekkingu og reynslu, þá þurfa menn að hafa þroska til að taka gagnrýni og hafa opin huga og kjark og þor til að spyrja sig spurninga.

Þær stöllur Valgerður, Halla og Hulda eru fórnarlömb meðvirki og afneitunnar og eru því ófærar um að viðurkenna að Þórarinn Tyrfingsson er með hreðjatak á samtökunum. Hann þolir enga gagnrýni og leyfir bara þær spurningar sem honum eru þóknanlegar.

Einhverjir kunna að undrast fyrirsögn þessa pistils. Er það verjandi að spyrja hvort SÁÁ sé mafía? Þeir sem hafa séð Godfather-myndirnar vita hvernig mafían vinnur. Mafíósarnir elska börnin sín og gera allt fyrir þau, síðan fara þeir út á götu og drepa feður annarra barna. Mér finnst starfsemi SÁÁ vera með svipuðum hætti.

SÁÁ reynir að gera vel við sína skjólstæðinga en samtökin slátra ráðgjöfunum sínum. Þeim sem vilja fá nánari útskýringu á þessari slátrun, vil ég benda á bók sem ég gaf út núna fyrir jólin og heitir: „Lítið spjallkver um brennivín og fleira“

Ég tel að SÁÁ sé ekki verðugur verktaki hjá ríkissjóði. Ég tel það áhyggjuefni að heilbrigðisráðherra skuli ár eftir ár henda hundruðum milljóna af peningum skattgreiðenda í þessi samtök, algjörlega blindandi og án þess að spyrja um árangur.

Það er löngu tímabært að yfirvöld taki upp meiri fagmennsku í þjónustunni við þennan sjúklingahóp. Það getur bara endað illa að útvista þessari þjónustu til einhverra samtaka og trúarhópa úti í bæ.

Einnig hef ég velt fyrir mér eftirlitshlutverki Landlæknisembættisins. Eru ekki allir að vinna vinnuna sína á þeim bænum?

Lesendur Vísis geta sent inn greinar á ritstjorn@visir.is. Greinunum þarf að fylgja mynd af höfundi.




Skoðun

Skoðun

Stöðvum hel­víti á jörðu

Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Sjá meira


×