Ellefu ára drengur skorar á LEGOLAND Baldvin Þormóðsson skrifar 11. mars 2014 22:41 Brynjar Karl er uppátækjasamur strákur sem hefur mikinn áhuga á LEGO. vísir/youtube „
Þetta er algjörlega hans hugmynd, í aðeins einfaldari útgáfu,“ segir Bjarney Lúðvíksdóttir, móðir Brynjars Karls, ellefu ára gamals drengs, í samtali við Vísi í kvöld. „Hann var búinn að skrifa bréf sem hann vildi senda en síðan fannst okkur myndband skemmtilegri hugmynd.“ Þau mæðginin birtu í kvöld stutt myndband þar sem Brynjar skorar á LEGOLAND að bjóða honum í verksmiðju þeirra í Billund og gefa honum tækifæri til þess að smíða sitt eigið Titanic skip úr legokubbum. Bjarney myndi fylgja honum út og taka upp ferðalagið sem gæti seinna orðið að heimildamynd um einhverfu. Brynjar Karl talar merkilega góða ensku í myndbandinu þrátt fyrir ungan aldur og segir Bjarney það vera að mestu internetinu og tölvunotkun hans að þakka. „Síðan er hann með svo skemmtilegan hreim sem að stemmir líklegast frá Harry Potter myndunum,“ segir Bjarney.Skrifaði bæjarstjóranum bréf Brynjar er mjög uppátækjasamur strákur en hann skrifaði eitt sinn bæjarstjóra Mosfellsbæjar bréf þar sem hann hvatti bæjaryfirvöld til þess að smíða endurgerð af Titanic skipinu fræga. „Hann vildi að allir gætu fengið að njóta þess að stíga um borð Titanic,“ segir Bjarney um bréfið. „Hann fékk meira að segja svar frá bæjarstjóranum að þetta væri frábær hugmynd en að fjárlög bæjarins leyfðu það ekki.“ Mæðgingin eru vongóð um að LEGO muni sjá myndbandið. „Við erum samt búin að útskýra fyrir Brynjari að það gæti ekki tekist og hann er sáttur við það,“ segir Bjarney „En við vonum bara það besta.“ Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.)
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira