Íslensk þáttaröð keppir um gull á alþjóðlegri kvikmyndahátíð Baldvin Þormóðsson skrifar 12. mars 2014 07:00 Kvikmyndahátíðin er haldin í borginni Olomouc í Tékklandi. vísir/afo
Sjónvarpsþáttaröðin Fjársjóður framtíðar sem helguð var fjölbreyttum vísindarannsóknum við Háskóla Íslands, mun keppa um gullverðlaun í flokki bestu vísindastuttmynda ársins á vísinda- og fræðslumyndahátíðinni AFO í Tékklandi. Um er að ræða eina virtustu kvikmyndahátíð í Evrópu á sviði heimilda- og fræðslumynda um vísindi. Fyrsti þátturinn í röðinni um Fjársjóður framtíðar verður sýndur sérstaklega á hátíðinni en hún verður haldin nú í apríl í háskólaborginni Olomouc.Þættirnir voru sýndir á RÚV sumarið 2013 og vöktu mikla athygli. Markmiðið með þáttunum var að veita sýn á hið fjölbreytta rannsóknastarf sem vísindamenn Háskóla Íslands sinna við afar ólíkar aðstæður og var þeim fylgt við rannsóknir á ferð og flugi víða um land. Þættirnir náðu til vísindarannsókna á öllum fræðasviðum Háskóla Íslands en í brennipunkti voru þó rannsóknir sem tengjast auðlindum Íslands, ekki síst hafinu og víðernum. Þá var hugað að málefnum innflytjenda auk þess sem glæpir og refsing komu við sögu. Til stendur að endursýna þættina nú í vor. AFO-hátíðin, International Festival of Science Documentary Films – Academia Film Olomouc, er ein sú elsta á þessu sviði í Evrópu og mun fagna hálfrar aldar afmæli á næsta ári. Árlega keppa margir helstu framleiðendur heims á sviði vísindamynda um verðlaun á hátíðinni en í hópi þeirra eru m.a. sjónvarpsstöðvarnar BBC, National Geographic og Discovery Channel.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira