„Háhýsið virkilega vond hugmynd“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 5. mars 2014 17:16 VÍSIR/ANTON/AÐSEND „
Háhýsið sem nú stendur til að reisa neðst við Skúlagötu í Skuggahverfinu er virkilega vond hugmynd,“ segir Líf Magneudóttir, sem skipar 2. sæti á lista VG fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Reykjavík. Framkvæmdir við minni turn af tveimur sem eiga að rísa við Lindargötu 39 og Skúlagötu 22 eru hafnar en háhýsið mun breyta götumynd Frakkastígs umtalsvert og skyggja á útsýni frá Skólavörðuholti niður götuna að sjónum. Líf segir jafnframt að þegar nýjar byggingar eru samþykktar þá verði að taka tillit til byggðar sem fyrir er. Hún segir að þó svo það sé mikilvægt að þétta byggð í Reykjavík, þá megi það ekki ganga á lífsgæði sem fyrir búa í borginni. „Þéttingu byggðar má ekki kaupa á hvaða verði sem er,“ segir Líf.MYND/JON KJELL SELJESETHEngar athugasemdir bárust þegar unnið var að gerð nýs deiliskipulags og segir hún ástæðuna augljósa, umsagnarferlið virki ekki. Þá veltir hún því fyrir sér hvernig hægt væri að leysa málið. „Maður veit best hvað er í gangi í sínu hverfi. Það væri hægt að auka samtöl við íbúasamtök, nýta netið betur og bæta það ferli sem fer af stað þegar kallað er eftir athugasemdum.“ Líf segir þó enga töfralausn vera í málinu, en segir þáttöku íbúa í ákvarðanatökum á vettvangi borgarinnar skref í rétta átt. Þá telur hún nauðsynlegt að efla hverfisráðin og tryggja að þau séu virkur öryggisventill og jafnvel að viðamikil skipulagsmál fari í víðtæka íbúakosningu. „Skipulagsslysin verða ekki aftur tekin. Skipulagsráð verður að hafa skýra sýn í skipulagsmálum, verður að setja hag okkar, íbúanna í fyrsta sæti og láta ekki spila með sig.“
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Innlent Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Innlent Vonar að þetta dugi til Innlent „ÁTVR dugar“ Innlent Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Erlent Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Innlent Katrín að taka afgerandi forystu Innlent Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Veður Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi Innlent Fleiri fréttir Svipað og frekar róleg haustlægð Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Mikill harmleikur en skýrir farvegir Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Katrín að taka afgerandi forystu Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Segja miður að móðir hafi upplifað að ekki væri hlustað á hana Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Hafa níu mánuði til að svara dómi MDE í talningamálinu Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru Vonar að þetta dugi til Hagkaup selur áfengi og Þórkatla kaupir í Grindavík „ÁTVR dugar“ Hækka leigu á stúdentagörðum um tvö prósent í haust Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu Fundur um athafnaborgina Reykjavík Kostnaður vegna uppkaupa fjórtán milljörðum meiri en áætlað var Brottfall ungra karla á Íslandi úr námi hæst í Evrópu Ákærður fyrir að nauðga barnungri hálfsystur sinni Enginn málefnalegur ágreiningur skýri brotthvarf bæjarstjóra Réðst í tvígang á starfsmann verslunar í Skeifunni Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi Augljóst að fylgið er enn á verulegri hreyfingu Sjá meira
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra