Yfir tveir milljarðar hafa runnið til hjálparstarfs fyrir börn Stefán Árni Pálsson skrifar 7. mars 2014 09:41 Samtals hafa yfir tveir milljarðar króna runnið til hjálparstarfs fyrir börn á tímabilinu eða nákvæmlega 2.161.439.074 krónur. visir/AFP
UNICEF á Íslandi fagnar nú tíu ára afmæli sínu. Frá því að landsnefndin var stofnuð hefur fólk hér á landi fylkt sér á bak við málstað þessara stærstu barnahjálparsamtaka heims. Samtals hafa yfir tveir milljarðar króna runnið til hjálparstarfs fyrir börn á tímabilinu eða nákvæmlega 2.161.439.074 krónur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Unicef á Íslandi. Þetta er barátta sem skipt hefur sköpum fyrir mikinn fjölda barna um víða veröld, tryggt þeim hreint vatn, heilsugæslu, menntun, næringu, vernd gegn ofbeldi og önnur sjálfsögð réttindi. Framlögin eru að langmestu leyti komin frá heimsforeldrum; hugsjónafólki um allt land sem styður baráttu UNICEF í hverjum mánuði. Fyrsta heimsforeldrið var skráð árið 2004 en í dag eru heimsforeldrar fleiri en 22.000 eða rúm 9% landsmanna.Heimsforeldrar UNICEF mynda net sem nær um alla heimsbyggðina, berjast fyrir réttindum allra barna og gæta að velferð þeirra. Breiðfylking heimsforeldra hér á landi hefur vakið athygli hjá UNICEF alþjóðlega en framlag heimsforeldra er hlutfallslega hvergi hærra en á Íslandi. Einnig er eftir því tekið að UNICEF á Íslandi hefur safnað hlutfallslega hæstum framlögum í heimi á meðal allra landsnefnda UNICEF. „Baráttan snýst þó ekki síður um vitund um börn og réttindi þeirra – að byggja upp samkennd og skilning á málefnum barna. Öll börn skipta máli, öll börn eiga rétt,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.Áhugi á hjálparstarfi stöðugt að aukast Í nær sjö áratugi hefur UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Stefán bendir á að ánægjulegt sé að sjá hvað hugmyndinni um UNICEF á Íslandi hafi verið vel tekið á þeim tíu árum sem liðin séu frá því að skrifstofan opnaði hér á landi. „Áhugi fólks á hjálparstarfi og réttindabaráttu fyrir börn er mikill og við skynjum skýrt að hann er sífellt að aukast. Því fögnum við mjög. Við erum líka stolt af því að vera orðin afl í íslensku samfélagi sem safnar ekki einungis háum fjárhæðum til hjálparstarfs fyrir berskjölduð börn heldur leiðir réttindabaráttu þeirra, vekur athygli á því hvað betur má fara varðandi börn hér á landi og kemur mikilvægum málefnum á dagskrá,“ segir hann.Staða barna breyst mikið Á þeim tíu árum sem UNICEF á Íslandi hefur starfað hefur staða barna í heiminum breyst mikið. Barnadauði hefur sem dæmi lækkað um nær þriðjung. Alls látast 7.000 færri börn á dag en gerðu fyrir áratug af orsökum sem koma hefði mátt í veg fyrir.Árangurinn í glímunni við barnadauða er ekki tilviljun heldur afleiðing þrotlausrar baráttu sem UNICEF alþjóðlega hefur leitt. Bólusetningar við lífshættulegum sjúkdómum, dreifing moskítóneta, hreint vatn, hreinlætisaðstaða, rétt næring og markviss fræðsla eru allt hlutir sem skipt hafa sköpum. „Stóru spurningarnar sem menn spyrja sig í hjálparstarfi hafa á þessum áratug farið úr því að snúast um hvort yfir í að spyrja: Hvenær?“ bendir Stefán Ingi Stefánsson á. Nú sé til dæmis ekki spurt hvort okkur takist að ráða niðurlögum alnæmis heldur settar saman vandlega útfærðar áætlanir um hvenær við náum kynslóð barna sem er beinlínis laus við HIV. Það sama eigi sem dæmi við um að útrýma skæðum sjúkdómum á borð við mænusótt og stífkrampa. Einnig hafi mikill árangur náðst hvað varðar réttindi barna á Íslandi. „Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var nýverið lögfestur og aukin fræðsla hefur skilað sér í meiri vitund um réttindi barna hér á landi og aukinni vísan í Barnasáttmálann í opinberri umræðu. Áhersla UNICEF á Íslandi og annarra aðila á baráttu gegn ofbeldi á börnum hefur einnig leitt til meiri framlaga til málaflokksins.“
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira