Erlent

Pistorius sagði öryggisvörðum að allt væri í lagi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Pistorius mætti fyrir dómara í Pretoríu síðasta sumar.
Pistorius mætti fyrir dómara í Pretoríu síðasta sumar. vísir/afp
Saksóknarar í máli suðurafríska spretthlauparans Oscars Pistorius segjast hafa sannanir undir höndum þess efnis að hann hafi sagt öryggisvörðum að allt væri í lagi eftir að kærasta hans, Reeva Steenkamp, var skotin til bana í febrúar á síðasta ári.

Fréttastöðin eNCA hefur gögn undir höndum frá saksóknurunum þar sem fram kemur að öryggisverðir hafi hringt í Pistorius og spurt hann hvort allt væri í lagi. Hann hafi staðfest það og ekki óskað eftir aðstoð þeirra.

Pistorius hefur verið formlega ákærður fyrir að myrða Steenkamp og hefjast réttarhöld yfir honum í næsta mánuði. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur, en hann hefur haldið fram sakleysi sínu frá upphafi. Hann segist hafa skotið Steenkamp þar sem hann hafi haldið að hún væri innbrotsþjófur.

Saksóknarar hafa þó fallist á þá skýringu Pistoriusar að hann hafi ekki verið búinn að setja undir sig gervifæturna þegar hann skaut Steenkamp í gegnum baðherbergishurð á heimi hlauparans. Þá er því haldið fram að Pistorius hafi verið einum og hálfum metra nær hurðinni en rannsókn lögreglu leiddi í ljós.


Tengdar fréttir

Fréttaskýring: Kaldrifjað morð eða hræðilegt slys?

Dómari í borginni Pretoria í Suður-Afríku hefur ákveðið að taka mál spretthlauparans Oscar Pistorius fyrir á morgun, eftir að búið er að taka blóðsýni úr honum. Til stóð að morðákæra gegn honum yrði tekin fyrir hjá dómstólum síðdegis í dag.

Neitar að hafa myrt kærustuna

Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Hver er Oscar Pistorius?

Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius er grunaður um að hafa myrt kærustu sína af yfirlögðu ráði að morgni 14. febrúar. En hver er þessi margumtalaði maður?

Pistorius hágrét í réttarsal

Spretthlauparinn Oscar Pistorius grét í réttarsal í morgun þegar hann var formlega ákærður fyrir morðið á kærustu sinni á heimili þeirra í gærmorgun.

Pistorius formlega ákærður

Frjálsíþróttamaðurinn Oscar Pistorius hefur verið formlega ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína á heimili þeirra í Suður-Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×