Viðræðuslit við ESB á dagskrá Jakob Bjarnar skrifar 27. febrúar 2014 16:55 Gunnar Bragi Sveinsson mælir nú fyrir umdeildri þingsályktunartillögu sinni. vísir/daníel/valli
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er nú að mæla fyrir fyrir umdeildri þingsályktun sinni þar sem lagt er til að viðræðum við Evrópusambandið verði slitið umsvifalaust. Um er að ræða fyrri umræðu. Gunnar Bragi bendir á að skoðanakannanir sýni að meirihluti þjóðarinnar sé á móti aðild að Evrópusambandinu. Þá segir hann að Ísland sé velkomið í Evrópusambandið þó viðræðum sé slitið nú, en þeir sem eru andsnúnir tillögunni hafa bent á að með henni séu hendur komandi stjórnvalda bundnar og málið verði tæplega tekið til athugunar, svo mikið sem, næstu áratugina. Gunnar Bragi mælir fyrir þessari ályktun í skugga mikilla mótmæla sem nú hefur verið efnt til alla þessa viku á Austurvelli. Trumbuslátturinn heyrist greinilega í þingsalnum. Á sérstakri síðu þar sem efnt hefur verið til undirskriftasöfnunar hafa nú um 38 þúsund manns, eða 15.5 prósent kosningabærra manna, ritað nafn sitt og krefjast þess að Alþingi sýni þjóðinni þá virðingu að hún fái að hafa um það að segja í þjóðaratkvæðagreiðslu, hvort viðræðunum verður slitið. Alþingi hefur logað í átökum um ályktunina undanfarna og meðal annars var á það bent að í greinargerð sem fylgir með tillögunni megi finna alvarlegar ávirðingar þar sem þingmenn eru sakaðir um að hafa greitt atkvæði um aðildarviðræður árið 2009 gegn sannfæringu sinni. Þar með felur greinargerðin í sér ásökun um stjórnarskrárbrot. Gunnar Bragi leggur nú fram endurskoðaða útgáfu af tillögu sinni að teknu tilliti til þessa. Vikan hefur verið viðburðarík það sem af er og margir atburðir sem tengjast tillögunni með beinum og óbeinum hætti. Þannig vakti það athygli að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, talaði á þeim nótum, við rússneska blaðamenn, að það samræmdist engan vegin hagsmunum Íslands að vera í ESB og málið væri frágengið. Þá hafa ummæli ráðherra Sjálfstæðisflokksins mjög verið í deiglunni en þeir voru afdráttarlausir í aðdraganda síðustu alþingiskosninga: Að viðræðum yrði ekki slitið nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar, spyr, eins og áður hefur ítrekað verið spurt á þingi, hvað það sé sem kallar á þennan flýti. Af hverju ekki sé rædd nýleg skýrsla um ESB og viðræðurnar og ákvörðun tekin í kjölfar þess. Skýrslan verði ekki kynnt þjóðinni. "Hvað réttlætir þetta óðagot? Og af slíkri óbilgirni og raun ber vitni?" Efnt hafi verið til kvöld og næturfunda um málið og ákvörðun um ályktunina hafi greinilega verið tekin áður en skýrslan leit dagsins ljós. Víst er að umræðan er talsvert hófstilltari en vænta mátti eftir að samkomulag milli þingflokksformanna tókst fyrr í dag um hvernig afgreiða á þetta mjög svo umdeilda mál á þinginu. Eftir þessa fyrri umræðu stendur til aðframhaldsumræða verði 10. mars. Þó er mikill þungi í andsvörum og mótmælin utan dyra þinghússins fara ekkert á milli mála. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, spyr til að mynda hvort ráðherra sé fáanlegur að draga tillöguna með öllu til baka? Svarið við því er einfalt af hálfu Gunnars Braga: Nei!
Tengdar fréttir Hávær krafa um að formenn útskýri ákvörðun um ESB aðild Formenn stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, neituðu báðir að svara spurningum fréttamanns í dag vegna fyrirhugaðrar afturköllunar umsóknar Íslands að Evrópusambandinu. 22. febrúar 2014 20:00 Dulin hótun forsætisráðherra Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að í gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Seðlabankann í ræðu á Viðskiptaþingi í síðustu viku hafi falist dulin hótun. 22. febrúar 2014 09:00 Hálfur milljarður í þróunaraðstoð til Úganda Mikil ólga er í Úganda eftir að dagblað birti nöfn 200 samkynhneigðra einstaklinga í landinu. Utanríkisráðherra íhugar að breyta þróunaraðstoð við Úganda. 25. febrúar 2014 20:00 Segir ríkisstjórnina taka málstað einræðisherra og drullusokka "Ef ríkisstjórnin er orðin svona skökk í hausnum að hún taki málsstað einræðisherra og drullusokka vítt og breitt um heiminn frekar en að standa með okkar nágrannaþjóðum og skynja hvað þær eru að hugsa, þá erum við í vondum málum,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. 21. febrúar 2014 10:50 Hvöss orðaskipti á Alþingi "Ég hef þó ekki logið að þinginu eins og þú,“ hrópar Gunnar Bragi Sveinsson að Steingrími J. Sigfússyni. 25. febrúar 2014 23:08 Promise heaven Það er verið að búa til orðavafninga þar sem ætlunin er greinilega að skilja loforðin eftir. Og púff! – loforðin hverfa í Promise heaven. 24. febrúar 2014 07:00 Umfjöllun um tillögu Gunnars Braga: Vilja draga umsóknina til baka Ríkisstjórnarflokkarnir samþykktu báðir í gær að styðja þingsályktunartillögu utanríkisráðherra. Skiptar skoðanir eru innan Sjálfstæðisflokks um slit viðræðna við ESB. 22. febrúar 2014 08:00 Tillaga um viðræðuslit komin fram Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að umsókn Íslands um aðild að ESB verði dregin til baka. Málið verður rætt á þingi í upphafi næstu viku. 21. febrúar 2014 19:03 Einar K heggur á hnútinn Samkomulag um þinghald hefur náðst. Tillagan umdeilda fer í nefnd. 27. febrúar 2014 15:12 Þingsályktun um viðræðuslit við ESB á leiðinni Formaður utanríkismálanefndar segir Alþingi hljóta að taka ákvörðun um framhald evrópumála að lokinni umræðu um skýrslu Hagfræðistofnunar. Stjórnarflokkarnir vilji ljúka viðræðunum. 20. febrúar 2014 20:00 Á ekki að bitna á þeim sem minna mega sín Úganda er ekki eina landið í heiminum þar sem brotið er á réttindum samkynhneigðra, og þiggur þróunaraðstoð frá Íslendingum. 26. febrúar 2014 20:00 Utanríkisráðherra segir ekki gengið gegn vilja almennings Gunnar Bragi Sveinsson blæs á yfirlýsingar sérfræðinga um að ákvörðunin um afturköllun viðræðna myndi útiloka Ísland frá sambandinu um langt skeið. 22. febrúar 2014 15:04 „Svona líta svikarar út“ Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og evrópusinni segir Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson vera svikara. 22. febrúar 2014 11:09 Stendur við orð sín um að Steingrímur hafi sagt ósatt „Ég hef ekki skap til þess að láta þennan Gunnar Braga Sveinsson halda bara uppteknum hætti,“ segir Steingrímur sem íhugar að leita réttar síns. 26. febrúar 2014 19:36 Krefjast þess að Gunnar Bragi biðjist afsökunar Ungir Evrópusinnar krefjast þess að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Alþingi í gær. 20. febrúar 2014 13:53 Hagfræðistofnun – rök gegn aðild lögð til hvílu Skýrsla Hagfræðistofnunar er að mörgu leyti góð – miðað við þann þrönga stakk sem Gunnar Bragi kaus að sníða henni í erindisbréfi. Að því sögðu tel ég að skýrslan sé af heilindum skrifuð, og prýðileg að mörgu leyti. Hver lítur silfrið sínum augum. Gegnum mín er skýrslan markverðust fyrir að leggja til hvílu margar helstu röksemdir þeirra, sem vilja slíta viðræðum við Evrópusambandið. 27. febrúar 2014 06:00 Birti lista með nöfnum samkynhneigðra Dagblað birti í dag lista yfir "200 helstu homma" landsins í kjölfar undirritunar laga sem herða refsingar við samkynhneigð í landinu. 25. febrúar 2014 10:56 Ekki áhugi í ESB á haltu mér, slepptu mér sambandi við Ísland Mjög erfitt verður að sannfæra aðildarríki ESB um að taka við nýrri aðildarumsókn Íslands að sambandinu ef núverandi umsókn verður dregin til baka. Svo segja heimildamenn okkar hjá Evrópusambandinu í Brussel og stangast þetta á við fullyrðingar utanríkisráðherra. 23. febrúar 2014 20:00 Ólafur Ragnar útskýrir Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar í rússneskum miðli "Aðild að Evrópusambandinu er Íslandi ekki í hag af sömu ástæðum og hún er Noregi ekki í hag og sem varð til þess að Grænland ákvað að yfirgefa Evrópusambandið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, í samtali við rússneskan miðilinn Metro. 25. febrúar 2014 22:25 „Forseti, ég hef orðið“ vítaverð ummæli Undir hælinn er lagt hvað þykja vítaverð ummæli á þinginu. 26. febrúar 2014 11:17 Bein útsending: Umræður um aðildarviðræður standa enn yfir Töluverður hiti hefur verið í mönnum og konum á Alþingi í kvöld þar sem umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið stendur yfir. 25. febrúar 2014 23:02 Mest lesið Segjast hafa verið neydd til að krjúpa tímunum saman og lýsa yfir ást sinni á Ísrael Innlent Lagði við Hverfisgötu eftir allt saman Innlent Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Innlent „Ég held að það sé sterk friðarvon núna“ Innlent Trump segir Hamas og Ísraela hafa náð samkomulagi Erlent Ástæða til að hafa áhyggjur af vanfjármögnun spítalans Innlent Myndir: Hágrátið og hlegið þegar fréttir bárust af friðarsamkomulagi Erlent „Ég ætla ekki að jarða hann, ég ætla að hafa hann á lífi“ Innlent Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað Innlent Utanríkisráðherra Palestínu á Íslandi á sögulegum tímum Innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað „Alls ekki og engan veginn“ sé hægt að hagga ESB Selta olli rafmagnsleysi á Suðurlandi Friður á Gasa mögulega í sjónmáli og rætt við utanríkisráðherra Palestínu Mosfellingur hjá Strætó leiðir unga Framsóknarmenn „Hvað varð um að gera meira, hraðar?“ Veðrið setur strik í reikninginn Segjast hafa verið neydd til að krjúpa tímunum saman og lýsa yfir ást sinni á Ísrael Utanríkisráðherra Palestínu á Íslandi á sögulegum tímum Leit að meintum brennuvargi engu skilað Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Lagði við Hverfisgötu eftir allt saman „Ég held að það sé sterk friðarvon núna“ Ástæða til að hafa áhyggjur af vanfjármögnun spítalans Meirihluti hlynntur þátttöku ef Ísrael er ekki með Varnargarðar hækkaðir við Grindavík Skýr afstaða landsmanna um hvort einkunnir eigi að vera í tölum eða bókstöfum „Auðvitað er ég hrædd um hana“ Ford vörubíll árgerð 1930 gefinn Byggðasafni Árnesinga „Ég ætla ekki að jarða hann, ég ætla að hafa hann á lífi“ Mamma Möggu Stínu gerir upp erfiðan dag Útlendingastofnun: Ekkert bendi til ómannúðlegrar meðferðar í Króatíu Hitnar undir feldi Lilju Játaði að hafa stolið tugum milljóna úr dánarbúi móður sinnar Játaði áralangt kynferðisofbeldi gegn stjúpdóttur sinni Bein útsending: Mótmæla handtöku Möggu Stínu Fékk aðsvif og missti bílinn yfir á annan vegarhelming Hefur áhyggjur af unga fólkinu Ungir Sjálfstæðismenn vilja stöðva hælisveitingar Sér fram á margar klukkustundir í fullkominni óvissu Sjá meira
Hávær krafa um að formenn útskýri ákvörðun um ESB aðild Formenn stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, neituðu báðir að svara spurningum fréttamanns í dag vegna fyrirhugaðrar afturköllunar umsóknar Íslands að Evrópusambandinu. 22. febrúar 2014 20:00
Dulin hótun forsætisráðherra Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að í gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Seðlabankann í ræðu á Viðskiptaþingi í síðustu viku hafi falist dulin hótun. 22. febrúar 2014 09:00
Hálfur milljarður í þróunaraðstoð til Úganda Mikil ólga er í Úganda eftir að dagblað birti nöfn 200 samkynhneigðra einstaklinga í landinu. Utanríkisráðherra íhugar að breyta þróunaraðstoð við Úganda. 25. febrúar 2014 20:00
Segir ríkisstjórnina taka málstað einræðisherra og drullusokka "Ef ríkisstjórnin er orðin svona skökk í hausnum að hún taki málsstað einræðisherra og drullusokka vítt og breitt um heiminn frekar en að standa með okkar nágrannaþjóðum og skynja hvað þær eru að hugsa, þá erum við í vondum málum,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. 21. febrúar 2014 10:50
Hvöss orðaskipti á Alþingi "Ég hef þó ekki logið að þinginu eins og þú,“ hrópar Gunnar Bragi Sveinsson að Steingrími J. Sigfússyni. 25. febrúar 2014 23:08
Promise heaven Það er verið að búa til orðavafninga þar sem ætlunin er greinilega að skilja loforðin eftir. Og púff! – loforðin hverfa í Promise heaven. 24. febrúar 2014 07:00
Umfjöllun um tillögu Gunnars Braga: Vilja draga umsóknina til baka Ríkisstjórnarflokkarnir samþykktu báðir í gær að styðja þingsályktunartillögu utanríkisráðherra. Skiptar skoðanir eru innan Sjálfstæðisflokks um slit viðræðna við ESB. 22. febrúar 2014 08:00
Tillaga um viðræðuslit komin fram Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að umsókn Íslands um aðild að ESB verði dregin til baka. Málið verður rætt á þingi í upphafi næstu viku. 21. febrúar 2014 19:03
Einar K heggur á hnútinn Samkomulag um þinghald hefur náðst. Tillagan umdeilda fer í nefnd. 27. febrúar 2014 15:12
Þingsályktun um viðræðuslit við ESB á leiðinni Formaður utanríkismálanefndar segir Alþingi hljóta að taka ákvörðun um framhald evrópumála að lokinni umræðu um skýrslu Hagfræðistofnunar. Stjórnarflokkarnir vilji ljúka viðræðunum. 20. febrúar 2014 20:00
Á ekki að bitna á þeim sem minna mega sín Úganda er ekki eina landið í heiminum þar sem brotið er á réttindum samkynhneigðra, og þiggur þróunaraðstoð frá Íslendingum. 26. febrúar 2014 20:00
Utanríkisráðherra segir ekki gengið gegn vilja almennings Gunnar Bragi Sveinsson blæs á yfirlýsingar sérfræðinga um að ákvörðunin um afturköllun viðræðna myndi útiloka Ísland frá sambandinu um langt skeið. 22. febrúar 2014 15:04
„Svona líta svikarar út“ Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og evrópusinni segir Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson vera svikara. 22. febrúar 2014 11:09
Stendur við orð sín um að Steingrímur hafi sagt ósatt „Ég hef ekki skap til þess að láta þennan Gunnar Braga Sveinsson halda bara uppteknum hætti,“ segir Steingrímur sem íhugar að leita réttar síns. 26. febrúar 2014 19:36
Krefjast þess að Gunnar Bragi biðjist afsökunar Ungir Evrópusinnar krefjast þess að Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Alþingi í gær. 20. febrúar 2014 13:53
Hagfræðistofnun – rök gegn aðild lögð til hvílu Skýrsla Hagfræðistofnunar er að mörgu leyti góð – miðað við þann þrönga stakk sem Gunnar Bragi kaus að sníða henni í erindisbréfi. Að því sögðu tel ég að skýrslan sé af heilindum skrifuð, og prýðileg að mörgu leyti. Hver lítur silfrið sínum augum. Gegnum mín er skýrslan markverðust fyrir að leggja til hvílu margar helstu röksemdir þeirra, sem vilja slíta viðræðum við Evrópusambandið. 27. febrúar 2014 06:00
Birti lista með nöfnum samkynhneigðra Dagblað birti í dag lista yfir "200 helstu homma" landsins í kjölfar undirritunar laga sem herða refsingar við samkynhneigð í landinu. 25. febrúar 2014 10:56
Ekki áhugi í ESB á haltu mér, slepptu mér sambandi við Ísland Mjög erfitt verður að sannfæra aðildarríki ESB um að taka við nýrri aðildarumsókn Íslands að sambandinu ef núverandi umsókn verður dregin til baka. Svo segja heimildamenn okkar hjá Evrópusambandinu í Brussel og stangast þetta á við fullyrðingar utanríkisráðherra. 23. febrúar 2014 20:00
Ólafur Ragnar útskýrir Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar í rússneskum miðli "Aðild að Evrópusambandinu er Íslandi ekki í hag af sömu ástæðum og hún er Noregi ekki í hag og sem varð til þess að Grænland ákvað að yfirgefa Evrópusambandið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, í samtali við rússneskan miðilinn Metro. 25. febrúar 2014 22:25
„Forseti, ég hef orðið“ vítaverð ummæli Undir hælinn er lagt hvað þykja vítaverð ummæli á þinginu. 26. febrúar 2014 11:17
Bein útsending: Umræður um aðildarviðræður standa enn yfir Töluverður hiti hefur verið í mönnum og konum á Alþingi í kvöld þar sem umræða um aðildarviðræður við Evrópusambandið stendur yfir. 25. febrúar 2014 23:02