David Stern er ekki lengur yfirmaður NBA-deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2014 13:45 David Stern. Vísir/Getty
Það eru tímamót í NBA-deildinni í körfubolta í dag því þetta er fyrsti dagurinn í 30 ár sem David Stern er ekki yfirmaður deildarinnar. Adam Silver hefur nú tekið við starfi Stern sem er orðinn 71 árs gamall og var fyrir löngu búinn að ákveða að hætta um þessi mánaðarmót. Þegar David Stern varð yfirmaður NBA-deildarinnar 1. febrúar 1984 þá var NBA-deildin langt frá því að vera á þeim stað sem hún er í dag. Leikir í miðri viku í lokaúrslitum voru sem dæmi ekki sýndir beint í Bandaríkjunum og framtíðin var ekki alltof björt. Undir stjórn Stern varð NBA-deildin ein sú allra vinsælasta í heimi, veltir nú 5,5 milljörðum dollara og hefur fyrir löngu hafið innrás sína inn á ný markaðssvæði út um allan heim. Auðvitað hjálpuðu leikmenn eins og Magic, Larry Bird og Michael Jordan að keyra upp vinsældir íþróttarinnar en ein mesta goðsögn NBA-sögunnar er örugglega David Stern vegna hans starf sem yfirmaður NBA. David Stern hefur verið umdeildur og stjórnsamur en það efast enginn um það sem hann gerði fyrir NBA-deildina og fyrrum leikmenn og þjálfarar hafa verið duglegir að tala vel um karlinn á þessum tímamótum.David Stern með eftirmanni sínum Adam Silver.Vísir/Getty
NBA Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Fleiri fréttir Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk Sjá meira