Öskurklefi afhentur borgarstjóra Ugla Egilsdóttir skrifar 21. janúar 2014 22:00 Öskurkassinn.
Sviðslistahópurinn Shalala afhendir borgarstjóra svokallaðan Öskurklefa við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 22. janúar klukkan 15:30. Öllum formönnum stjórnmálaflokka er boðið að vera viðstaddir. Ólafur Darri Ólafsson, leikari, og Erna Ómarsdóttir dansari afhenda borgarstjóra klefann fyrir hönd Shalala. „Klefanum er ætlað að hjálpa pólitíkusum að taka réttar ákvarðanir,“ segir Erna Ómarsdóttir. „Þegar maður öskrar þá skýrist allt fyrir manni. Pólitíkusar geta nýtt sér þetta.“ Ekki er hætta á að klefinn raski vinnufriði í ráðhúsinu, því klefinn er hljóðeinangraður. „Það er erfitt að öskra úti á götu af því að þá heldur fólk að maður sé klikkaður og maður á jafnvel á hættu að vera handtekinn. Klefarnir eru hentugir staðir þar sem mönnum leyfist að öskra. Að okkar mati ættu svona klefar að vera út um allt. Samfélagið væri betra ef menn fengju að öskra í friði og koma út úr klefanum sem nýir menn.“Erna Ómarsdóttir.Meiningin er að gefa bæði Alþingi og borgarstjóra klefa. „Við vitum þó ekki hvort eða hvenær Alþingi tekur við honum,“ segir Erna. Klefinn verður til sýnis í ráðhúsinu næstu vikur. Öskurkassar eru hluti af sýningunni Inn að beini. „Það er aukasýning á henni í Þjóðleikhúsinu á föstudaginn. Ef menn kaupa miða á Inn að beini fá þeir ókeypis prufutíma í metal-eróbikki, sem er líka stresslosandi tegund af leikfimi. Hún er aðeins meira brútal en önnur leikfimi.“Hér má kaupa miða á sýninguna Inn að beini.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Fleiri fréttir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Sjá meira