Lífið

Byrjaður að nota rakakrem

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Twilight-leikarinn Robert Pattinson er í viðtali í nýjasta hefti tímaritsins WSJ og talar meðal annars um hvað hann gerir til að taka sig til fyrir daginn.

„Ég var einu sinni gaur sem burstaði bara tennurnar og fór í sturtu. Ég veit ekki hvort það er vegna tengingar minnar við Dior eða af því að ég er að eldast en ég er byrjaður að nota rakakrem. Það er mikil breyting í mínu lífi,“ segir Robert sem leikur í auglýsingum fyrir Dior Homme.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.