Stórglæsilegar léttklæddar á Húsavík Ellý Ármanns skrifar 22. janúar 2014 11:15 Myndir/framsýn.is „
Dagatalið er prentað í 300 eintökum og við erum mjög stoltar af þessu,“ segir Jóhanna Björnsdóttir félagskona Kvenfélags Húsavíkur spurð um dagatal myndskreytt með léttklæddum félagskonum en stéttarfélagið Framsýn.is vakti athygli á þessu frábæra framtaki kvennanna.Jóna Kristín Gunnarsdóttir og Magnea Dröfn Arnardóttir.Eitt áritað eintak til „Við erum ægilega ánægðar með þetta. Þetta lukkaðist mjög vel. Ljósmyndarinn Pétur Jónasson vann þetta með okkur en hugmyndina unnum við að allar saman. Það var þannig að við opinberuðum dagatalið á blótinu með skemmtiatriði síðustu helgi en það vissi enginn af þessu. Við erum búnar að vera að vinna í þessu síðan í september í haust. Svo afhjúpuðum við það með því að bjóða upp eitt áritað eintak en það er eina áritaða eintakið sem er til,“ segir Jóhanna.Jóhanna Björnsdóttir félagskona í þorrablótsnefnd og formaður Framsýnar stéttarfélags, Aðalsteinn Á. Baldursson. Framsýn styrkti kvenfélagið við útgáfuna ásamt fleiri fyrirtækjum.Viðtökurnar komu á óvart „Þetta var rúmlega 500 manna blót sem kvenfélagið heldur árlega. Það var haldið í íþróttahöllinni á Húsavík og viðtökurnar komu okkur verulega á óvart. Þegar konur koma saman og vinna að svona skemmtilegu verkefni þá hugsum við eingöngu um að vanda okkur og gera það vel,“ segir Jóhanna og bætir við að dagatalið verður til sölu í anddyri Kaskó á Húsavík á morgun fimmtudag og föstudag.Sjáðu fleiri myndir úr dagatali kvenfélagsins hér.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira