Saka faghóp borgarinnar um spillingu Jakob Bjarnar skrifar 22. janúar 2014 14:31 Enn er tekist á um RIFF-málið svokallað; hvort rétt hafi verið að styrkja aðra en RIFF til að standa að kvikmyndahátíði í Reykjavík.
Borgarfulltrúarnir Áslaug María Friðriksdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson fóru mikinn í gær þegar þau gagnrýndu ákvörðun meirihlutans um að vilja ekki endurskoða ákvörðun sína um styrk til Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík eða RIFF á borgarstjórnarfundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Áslaug gagnrýndi meirihlutann fyrir að vilja ekki taka á málinu og skýla sér að baki niðurstöðu faghóps Bandalags íslenskra listamanna (BÍL). Gagnrýna megi niðurstöður og rökstuðning faghópsins. Þá væri undarlegt að meta að jöfnu hugmynd að hátíð sem aldrei hefur verið haldin og hátíðar sem rekin hafi verið í 10 ára samstarfi við Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borgarstjórnarhópi Sjálfstæðisflokksins.„Hostile takeover“ Málið hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu en borgaryfirvöld tóku ákvörðun um að hætta fjárveitingum til þeirra sem staðið hafa að RIFF kvikmyndahátíðinni undanfarin tíu ár, en RIFF hlaut 9 milljóna króna styrk í fyrra. Nú var ákveðið að Heimili kvikmyndanna, sem vilja standa að kvikmyndahátíð í Reykjavík 8 milljónir til þess verkefnis. Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri RIFF og stjórnarformaður hefur gagnrýnt þessa ráðstöfun harðlega sem og Baltasar Kormákur kvikmyndaleikstjóri, sem situr í stjórn RIFF. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar hefur vísað öllum umkvörtunum á bug og segir ákvörðunina tekna að fengnu áliti faghópi BÍL hvar í sitja Gunnar Hrafnsson, Ólöf Nordal, Randver Þorláksson, Magnea J. Matthíasdóttir og Valdís Óskarsdóttir. Þangað beindu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins spjótum sínum, þegar þetta mál var til umfjöllunar í borgarráði. Áslaug sagði einnig að í raun væri faghópurinn nátengdur þeim aðilum sem vilja halda hina nýju hátíð enda allt aðilar að BÍL, ólíkt RIFF sem væri það ekki. Um leið væri mjög óeðlilegt af meirihlutanum að endurskoða ekki ákvörðun faghópsins. Þessu mætti því hugsanlega líkja við nokkurs konar „hostile takeover“.Ófaglegur faghópur Áslaug hélt áfram og sagði að þrátt fyrir mótbárur um að nýja kvikmyndahátíðin sé sjálfstæð og tengist ekki Bíó Paradís þá verði ekki annað séð af rökstuðningi faghópsins, sem gerður hefur verið opinber, að þar sé einmitt vísað í rök fyrir því að fái nýja hátíðin styrkinn, styrki það rekstrargrundvöll bíósins verulega. Hér verði því ekki annað séð en að RIFF sé fórnað í því skyni að styrkja rekstrargrundvöll félags sem rekið er af nokkrum aðildarfélögum innan BÍL.Júlíus Vífill Ingvarsson sagði að það væri einfeldni að halda að svokallaður faghópur sem fór yfir styrkumsóknir sé óháður og hlutlaus. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs sýnir því engan áhuga að finna farsæla lausn í málinu. „Stjórnmálafólk getur ekki falið ákvarðanir sínar og ábyrgð bak við slíka hópa. Núverandi meirihluti hefur áður reynt að koma höggi á RIFF og nú á að ljúka kjörtímabilinu með því að ganga alla leið. Einn af okkar allra fremstu kvikmyndaleikstjórum kallaði þetta pólitískt sull og það er hægt að taka undir það,“ bætir Júlíus Vífill jafnframt við.Borgarfulltrúar í pólitísku sulli Þetta eru býsna alvarlega ásakanir á hendur faghópnum, í raun er verið að saka hann um annarlega hagsmuni. „Allt síðan 2004 hefur faghópur BÍL farið yfir umsóknir sem borist hafa í menningarpottinn. Á þessu kjörtímabili höfum við undantekningarlaust farið að tillögum faghópsins. Það er fullt traust á þetta verkferli og þá vinnu og þær tillögur sem faghópur hefur skilað til okkar. Það er líka núna,“ segir Einar Örn. Spurður hvort borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins séu hugsanlega að nota þetta mál til að koma höggi á núverandi meirihluta segir Einar: „Mér finnst athyglisvert að þessi styrkveiting skuli setja eitthvað svona í gang núna. Það kemur engu höggi á meirihlutann. Það hefur ríkt algjör sátt um þetta ferli sem haft er við styrkúthlutanir og það er ekkert sem gefur til kynna með að eitthvað sé rangt í þessu ferli núna,“ segir Einar Örn. Og hann segir ýmislegt sem kemur fram í máli borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins rangt. „Til dæmis það að núverandi meirihluti hafi reynt að koma höggi á RIFF. Það er rangt. Ég hef unnið með RIFF, það hafa komið fram athugasemdir um ýmsa hluti og ég, sem eftirlitsaðili hef tekið á því með RIFF. Það hefur verið ágætt samstarf við RIFF. Enda er það ekki til umræðu núna, heldur að það að tvær umsóknir um kvikmyndahátíð bárust og önnur fékk brautargengi, hin ekki. Það er það sem er til umræðu. Ef einhver er að tala um pólitískt sull, sem Júlíus Vífill er að vitna í, og hefur eftir leikstjóra, þá er það það sem borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru að standa í. Ef einhver er að sýna fjandsamlega yfirtöku á verkferli sem hefur verið í gangi í tíu ár gegnum vinnu faghóps BÍL, með því að gera hana tortryggilega, þá eru það þeir.“
Tengdar fréttir Óeðlilega hár styrkur til Kvikmyndahátíðar í Reykjavík? Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur óeðlilegt að ný kvikmyndahátíð fái átta milljón króna styrk frá Reykjavíkurborg. 14. janúar 2014 20:22 Opið bréf til Reykjavíkurborgar vegna RIFF Stjórn RIFF, sem skipuð var árið2013 að ósk Reykjavíkurborgar, harmar þá ákvörðun Menningar-og ferðamálaráðs að hætta styrkveitingu til Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík –RIFF eftir 10 ára farsælt samstarf um uppbyggingu hátíðarinnar á alþjóðavettvangi. 13. janúar 2014 07:00 Rifist um RIFF Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi segir faglega staðið að ákvörðuninni um að hætta að styrkja kvikmyndahátíðina og beina milljónunum annað. 14. janúar 2014 11:00 Enn er rifist um RIFF Hrönn Marinósdóttir gagnrýnir harðlega orð Einars Arnar er varða styrkveitingar Reykjavíkurborgar til kvikmyndahátíðar í Reykjavík. 15. janúar 2014 11:35 Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Sjá meira
Óeðlilega hár styrkur til Kvikmyndahátíðar í Reykjavík? Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur óeðlilegt að ný kvikmyndahátíð fái átta milljón króna styrk frá Reykjavíkurborg. 14. janúar 2014 20:22
Opið bréf til Reykjavíkurborgar vegna RIFF Stjórn RIFF, sem skipuð var árið2013 að ósk Reykjavíkurborgar, harmar þá ákvörðun Menningar-og ferðamálaráðs að hætta styrkveitingu til Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík –RIFF eftir 10 ára farsælt samstarf um uppbyggingu hátíðarinnar á alþjóðavettvangi. 13. janúar 2014 07:00
Rifist um RIFF Einar Örn Benediktsson borgarfulltrúi segir faglega staðið að ákvörðuninni um að hætta að styrkja kvikmyndahátíðina og beina milljónunum annað. 14. janúar 2014 11:00
Enn er rifist um RIFF Hrönn Marinósdóttir gagnrýnir harðlega orð Einars Arnar er varða styrkveitingar Reykjavíkurborgar til kvikmyndahátíðar í Reykjavík. 15. janúar 2014 11:35